18.05.1984
Neðri deild: 98. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6286 í B-deild Alþingistíðinda. (5733)
155. mál, kosningar til Alþingis
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Ég skal vera stuttorður. Ég sé að mín varnaðarorð í dag hafa átt fullan rétt á sér því að meiningin var að ljúka fundi klukkan sjö, en nú er klukkan að verða hálfátta.
Mig langar til að fara örfáum orðum um það sem hefur komið hér fram, fyrst umræða hæstv. forsrh. Mér finnst hæstv. forsrh. skjóta sér um of á bak við þingflokkana — eða ber að skilja það svo að hæstv. forsrh. hafi engin áhrif í þingflokki Framsfl. og geti ekki beitt sér þar fyrir framgangi þeirra loforða sem hann stóð að í þeim félagsskap á síðasta þingi?
Hæstv. forsrh. sagðist mundi beita sér fyrir því að menn komi saman og þá hygg ég að hann hafi átt við fulltrúa þingflokkanna sem búið er nú að tilnefna, en ekkert er farið að vinna í málinu enn.
Mér finnst hvar sem gripið er niður í þessu máli að það beri þess keim að menn hafi vægast sagt lítinn áhuga á því að standa við gefin fyrirheit í yfirlýsingu og efna loforð sem kjósendum voru gefin við afgreiðslu þessa máls á síðasta þingi. Það má vel vera að það sé rétt hjá hæstv. forsrh. að verið sé að vinna að þessu máli víða í þjóðfélaginu. Ég dreg það ekkert í efa þó að ég vilji ekki fullyrða neitt, ég veit það ekki. En menn virðast alltaf gleyma því að ef menn ætla að bíða, þó ekki væri nema nokkra mánuði, ég tala nú ekki um nokkur ár, með leiðréttingar á því gífurlega misrétti sem fólk er beitt á landsbyggðinni, þá þýðir það nánast landauðn á þessum svæðum. Þetta verður að gera strax. Það þýðir ekkert að vera að drepa málinu á dreif með því að segja að það sé verið að vinna að þessu hér og þar, hingað og þangað af hinum og þessum. Ef það á að forða því að hér verði stórkostlegt slys með því að meiri byggðaröskun eigi sér stað en nokkur dæmi eru til, þá verður að grípa strax til ráða og létta byrði landsbyggðarfólks og aflétta því gífurlega misrétti sem það býr við. Þetta er mergurinn málsins. Þetta eru grundvallaratriði.
Ég er enn frekar undrandi á málflutningi hv. þm. Guðmundar Einarssonar áðan. Mér þótti nú nóg komið úr þeim herbúðum áður þó ekki bættist nú við að hann segði að ég ruglaði saman óskyldum hlutum og við gætum ekki nálgast jöfnun búsetu í gegnum atkvæðisrétt. Ég hygg að þessi hv. þm. hafi aldrei heyrt mig halda því fram. Ég hef meira að segja lýst því yfir hér trekk í trekk að ég væri ekki mótfallinn því að leiðrétta það misvægi atkv. sem menn eru að tala um. En ég vil bara gera fleira í leiðinni. Ég vil leiðrétta fleiri óréttlætisþætti í leiðinni. Það er jafnaðarstefnan sem ég er að tala um. Óréttlætið blasir víða við í þjóðfélaginu, og það ætla ég ekki að fara að telja hér upp, það er misjafnt, en það er herfilegt óréttlæti og misrétti sem blasir við í mörgum þjóðfélagsþáttum sem á að taka á og leiðrétta um leið og menn leiðrétta þennan þátt. Ég rugla því engu saman.
Svo sagði hv. þm.: Hvað með láglaunafólkið í Reykjavík? Ég sé nú ekki að það eigi eitt sér sérstakt erindi inn í þessa umr. Láglaunafólk er víða til. En hvernig eru kjörin? Menn mega ekki alltaf rugla saman lágum launum og kjörunum sem heild. Hvað þurfa menn að borga af sama kaupi á þessum staðnum og hinum fyrir það sem þeir þurfa nauðsynlega að hafa sér til lífsviðurværis? Það er tvennt ólíkt, getur a. m. k. verið tvennt ólíkt, að tala um launamál annars vegar og svo kjaramál á hinn veginn. Þar getur verið mikill munur á. Maður getur af lágum launum á einu svæðinu lifað betra lífi en á öðru vegna þess að hann þarf að borga í öðru tilfellinu miklu, miklu meira fyrir það sama, sem hann verður að lifa af, en hann gerir á hinu láglaunasvæðinu. Þessu þurfa menn að gera sér grein fyrir. Það þarf líklega 20–30% hærra kaup á „köldu svæðunum“ til þess að standa undir þeim kostnaði sem þar er umfram það sem gerist hér. Þetta þurfa menn að taka með í reikninginn.
Ég vil taka undir það, sem kom fram hjá hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni, að vissulega hefur hallað undan fæti hjá íbúum köldu svæðanna svokölluðu. Lífsafkoma fólks á þeim svæðum hefur hríðversnað umfram það sem annars staðar hefur gerst, og er þó ærin sú kjaraskerðing sem átt hefur sér stað í þeim efnum. Það er því ekki að ástæðulausu sem mér finnst alveg furðulegt skilningsleysi hv. þm. almennt á að hér verður að taka strax til hendi, lagfæra, leiðrétta það misrétti sem fyrst og fremst bagar og er hvað verst og mest. Það þarf að gera strax. Það er ekki um það að ræða að bíða með það í vikur, mánuði eða ár. Þá verður slysið, og kannske stóra slysið, löngu skeð og menn fluttir unnvörpum utan af landsbyggðinni og hingað. Það er hvorki þessu svæði né þjóðfélagsheildinni til hins betra að allir hrúgist í steinkassa hér í Reykjavík. Þá verður lítið eftir í kassanum hjá hæstv. fjmrh. ef allt það fólk sem vinnur við framleiðsluna, gjaldeyrisskapandi atvinnu, flykkist í steinblokkir hér í Reykjavík. Þá minnkar í buddunni hjá mörgum í þessu landi umfram það sem er nú þegar.
Ég skal, herra forseti, ekki hafa þessi orð öllu fleiri, en ég ítreka að ég tel að hér hafi menn hent slys, þá sem vilja þetta mál fram með þeim hætti sem nú er án þess að taka önnur mál með í leiðinni. Ég sé að hæstv. forsrh. er farinn. Ég vildi í lokin skora á hæstv. forsrh. að sjá til þess að nú þegar verði gripið til aðgerða til að bægja frá — a. m. k. létta það gífurlega misrétti sem fólk úti á landi býr við, létta því oki af sem það hefur verið látið bera og er ætlað að bera að óbreyttu ástandi. Ég skora á hæstv. ráðh. að hlutast til um að gripið verði til aðgerða og það strax sem létta, a. m. k. verulega, byrði þessa fólks sem það hefur þurft að bera allt of lengi.
Ég vil svo að lokum taka undir það að mér finnst það alveg með eindæmum, og ég hugsa að það megi leita lengi til að finna eitthvað sambærilegt í þingsögunni, að svo til enginn af málflytjendum þessa máls, sem bera það fram og að því standa, tekur þátt í umr. um málið þrátt fyrir þá staðreynd að þeir telja það svona mikilvægt. Framsögumaður þessa máls, hv. 2. þm. Norðurl. v., hefur ekki sést hér í þingsölum í allan dag á þeim tíma sem málið hefur verið rætt. Ég veit að hann er að koma nú undir lokin. (Gripið fram í.) Ég sá hv. þm. þegar hann gekk í salinn. — Undarlegt er að flytjendur máls, einstaklingar sem eru forustumenn í íslenskum stjórnmálum hver fyrir sinn flokk og telja mál svo mikilvægt sem þeir hafa um talað þó ekki sé í þessum umr., skuli ekki sjá ástæðu til þess að taka þátt í umr. um málið og skiptast á skoðunum við okkur hin sem höfum ýmislegt við málið að athuga og erum andvíg því. Auðvitað er það svo, a. m. k. í flestum tilfellum, að skoðanaskipti eru af hinu góða. Það verður að ætlast til þess af forustumönnum í íslenskum stjórnmálum að þeir rökræði við þá einstaklinga og aðila sem eru á öndverðum meiði ef umr. er á málefnalegum grundvelli. Ég held, a. m. k. er það mín skoðun, að sú umr., sem í meginatriðum hefur farið fram um þetta mál, sé á málefnalegum grundvelli. En það er auðvitað erfitt að ræða lengi mál við andstæðing sem hvergi er nálægur. Það gefur augaleið að slíkt leiðir ekki til góðrar niðurstöðu. (Gripið fram í: Þú ert að berjast við drauga Karvel.) Já, ekki voru þetta mín orð. Þetta eru orð hv. þm. Bjarna Guðnasonar. Aldrei hefði ég látið mér um munn fara slík orð. (HBl: En er þm. sammála þeim?) Hvað segir hæstv. skrifari. Er hann nú farinn að blanda sér líka í? Það er meiri ókyrrðin sem færist yfir hv. þd. ef ég kem í ræðustól, sem sjaldan er. Það er naumast að mönnum klæjar undan því sem þá er sagt. Ég vildi að það væri hægt að klóra þeim hinum sömu sem þetta mál flytja og undir því eiga að standa. Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri. Það er alveg augljóst að þetta mál verður hér samþykkt þrátt fyrir það, að ég hygg, að allir hengi hausinn yfir málinu. Allir eru hundóánægðir með það í því formi sem er. Því hefði verið æskilegra að menn hefðu skoðað hug sinn betur áður en farið var fram með málið með þeim hætti sem gert var og sem nú er endurtekið.
Nú sé ég að hv. frsm. og líklega formaður lausanefndarinnar, sem menn hafa kallað, er sestur í þingsæti sitt og brosir breitt. Kannske er þess að vænta að hann ljúki umr. í áheyrn þdm. sem hafa séð sér fært að sitja hér allan fundinn.