18.05.1984
Neðri deild: 98. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6292 í B-deild Alþingistíðinda. (5747)

Um þingsköp

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Ég óska svars við því hvers vegna eina málið, sem er Nd.-mál, er hér til 2. umr. á dagskránni og er samkomulagsmál, er ekki tekið fyrir nú þó að áliðið sé fundartíma, hvort hæstv. forseti vill reyna að taka það fyrir nú og ef það tekur innan við 5 mínútur, hvort hv. deild mundi þá ekki á það fallast eftir það umburðarlyndi sem hún hefur sýnt.