19.05.1984
Neðri deild: 99. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6328 í B-deild Alþingistíðinda. (5785)

252. mál, fjarskipti

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv. til fjarskiptalaga er 252. mál þingsins. Það er samið af nefnd sem fyrrv. samgrh. skipaði í nóv. 1981. Í þeirri nefnd áttu sæti Halldór E. Sigurðsson fyrrv. samgrh., sem var formaður nefndarinnar, Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri, Eiður Guðnason, Guðjón Ingvi Stefánsson, Helgi Seljan, Jón A. Skúlason og Jón Sveinsson lögfræðingur.

Nefndin skilaði áliti í vetur og tók ég ákvörðun um að leggja frv. hennar fram óbreytt. Í frv. er fyrst og fremst það nýmæli að notendabúnaður er gefinn frjáls. Hins vegar hafa komið fram frekari óskir um aukið frjálsræði í fjarskiptakerfið. Eins og fram kemur við endurskoðun nefndarinnar eru þar ákveðin atriði sem ekki var tekin afstaða til, en breytingar í þessum efnum eru að verða það víðtækar og örar að ég hef í hyggju að skipa nýja nefnd til að gera tillögur um þær breytingar sem er nauðsynlegt að gera. Hins vegar legg ég mjög mikla áherslu á að þetta frv. nái fram að ganga svo að frjálsræði verði aukið hvað snertir notendabúnað. Eitt atriði enn, sem er í sambandi við starfsréttindi símvirkja, sem verða tekin til athugunar og hægt er að sumu leyti, að ég tel, að breyta með reglugerðum. Hér verður nokkur breyting á stöðu þeirra, sem verður að taka tillit til, en það er sjálfsagður hlutur sem ekki þarf að fara frekar út í.

Ég hef rakið svo ítarlega efni þessa frv. í Ed. og þar með þingtíðindum að ég sé ekki ástæðu til að tefja tímann með því hér, en legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. samgn.