19.05.1984
Neðri deild: 99. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6336 í B-deild Alþingistíðinda. (5808)

221. mál, jarðalög

Frsm. (Þórarinn Sigurjónsson):

Herra forseti. Landbn. Nd. hefur haft til meðferðar frv. til l. um breytingu á jarðræktarlögum nr. 65 31. maí 1976, með síðari breytingum. Frv. var rætt í nefndinni og komu til viðtals við nefndina Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri, Bjarni Guðmundsson aðstoðarmaður landbrh. og Tryggvi Gunnarsson lögfræðingur landbrn.

Nefndin mælir með samþykkt frv. eins og það kemur frá Ed. Fjarstaddur afgreiðslu málsins var Pálmi Jónsson. Tveir nm. skrifa undir með fyrirvara, Steingrímur J. Sigfússon og Bjarni Guðnason.