19.05.1984
Sameinað þing: 92. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6348 í B-deild Alþingistíðinda. (5862)
335. mál, kísilmálmverksmiðja á Reyðarfirði
Frsm. meiri hl. (Birgir Ísl. Gunnarsson):
Herra forseti. Atvmn. Sþ. hefur fjallað ítarlega um þessa þáltill. og leggur til að till. verði samþykkt með breytingu sem flutt er á þskj. 927. Einn nm., hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir, hefur skilað séráliti.
Ég vil í sem stystu máli rekja þau helstu atriði sem n. tók til meðferðar í sambandi við afgreiðslu þessa máls. Í fyrsta lagi var rætt mjög ítarlega um þá grg. sem stjórn Kísilmálmvinnslunnar hefur látið frá sér fara til hæstv. iðnrh. um arðsemi væntanlegrar verksmiðju. Var ítarlega farið yfir þessa skýrslu á fundum n. og til kvaddir ýmsir aðilar til að gefa upplýsingar, bæði frá fyrirtækinu sjálfu, frá Þjóðhagsstofnun og frá járnblendiverksmiðju eins og fram kemur í nál. Ég held að það verði að fullyrða að áætlun um stofnkostnað þessarar verksmiðju verði að teljast mjög örugg og vel unnin. Stærðir í þessari áætlun eru að miklu leyti þekktar og byggjast m. a. á samningum sem gerðir hafa verið um búnað, svo og á tilboðum sem borist hafa í verksmiðjuhús og nauðsynlegan véla- og rafbúnað. Heildarstofnkostnaður verksmiðjunnar er talinn vera 1 842 500 000 kr.
Rekstraráætlun er einnig í flestum greinum byggð á þekktum stærðum varðandi rekstrarkostnað. Má þar nefna hráefniskostnað, launakostnað, flutningsgjöld og fleira þess háttar. Varðandi rafmagnsverð var leitað til Landsvirkjunar og leitað eftir áliti hennar á því rafmagnsverði sem miðað hefur verið við í arðsemisútreikningum, en það eru 18 mill. Um það efni segir Landsvirkjun í sínu áliti, með leyfi hæstv. forseta:
„Landsvirkjun hefur áður, m. a. í bréfi til Kísilmálmvinnslunnar hf., dags. 18. nóv. 1982, skýrt frá því að áætlað verð á forgangsorku til stóriðju muni liggja á bilinu 18–22 mill á kwst. Gengishækkun dollarans undanfarið gagnvart öðrum myntum gerir það að verkum að þrátt fyrir okkar verðbólgu eru þessar tölur enn óbreyttar og það þótt nú sé reiknað með 6% raunvöxtum í stað 4–5% áður. Komi kísilmálmverksmiðjan í fullan rekstur 1988 er það á mjög heppilegum tíma með tilliti til Blönduvirkjunar og mundi slíkt tryggja aukna hagkvæmni í nýtingu virkjunarinnar. Felast í þessu rök fyrir sölu á orku til kísilmálmverksmiðjunnar á verði sem liggur við fyrrnefnd neðri mörk, enda verði ákvæði um kaupskyldu og verðtryggingar svo og önnur ákvæði orkusamnings viðunandi.“
Varðandi þessa áætlun er auðvitað mest óvissan um verð kísilmálms og það er sá þáttur þessarar áætlunar sem ræður mestu um afkomu fyrirtækisins. Enginn mannlegur máttur getur með fullri vissu spáð fyrir um þróun í þessu efni. Arðsemisútreikningar Kísilmálmvinnslunnar eru byggðir á spám tveggja virtra alþjóðlegra ráðgjafarfyrirtækja sem stjórn fyrirtækisins hefur síðan reynt að leggja sjálfstætt mat á. Miðað við spá um þróun verðs eru niðurstöður arðsemisáætlana þær að arðsemi heildarfjárfestingar í verksmiðjunni er í megintilviki 15.8% fyrir sköttun, 12.6% eftir sköttun og 18.5% af eigin fé. Einnig eru í þessari áætlun reiknuð ýmis frávik, bæði frá áætluðu söluverði, frá áætluðu hráefnisverði og áætluðu raforkuverði.
Ef hins vegar er reiknað með kísilmálmverðinu eins og það er í dag — en í þessari spá er reiknað með nokkurri hækkun — er arðsemin fyrir sköttun 9.3%, eftir sköttun 7.4%, þ. e. arðsemi af heildarfjármagni, en arðsemi eigin fjár 8.4%.
Um slíka arðsemisútreikninga má vafalaust alltaf deila og aðferðirnar eru fleiri en ein. Ég held hins vegar að þessir útreikningar séu vel unnir og í rauninni verði ekki komist nær sannleikanum með áætlanagerð. Næsta skrefið hlýtur að vera að færa áætlunina út í lífið sjálft.
Í öðru lagi var allmikið rætt um markaðsmál í n. og sú spurning kom upp hvort nægilega hefði verið unnið í markaðsmálum fyrirtækisins til þessa. Fram kom hjá framkvæmdastjóra Kísilmálmvinnslunnar að ítarlegar viðræður hefðu farið fram við ýmis fyrirtæki um sölu og markaðsmál. Hann benti réttilega á að það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að ganga langt í því að markaðssetja vöru frá fyrirtæki sem ekki er búið að taka ákvörðun um hvort byggja eigi. Þess vegna m. a. er talið nauðsynlegt að færa nú ákvörðunarvaldið um mál þetta til hæstv. ríkisstj., taka mikilvægt skref í átt til endanlegrar ákvörðunar.
Þá má benda á að endanleg markaðssetning er háð væntanlegri eignaraðild. Ef t. d. fyrirtæki, sem notar mikinn kísilmálm, gengi til samvinnu um eignaraðild væri mikil trygging í því fólgin og að sjálfsögðu jafnframt ljóst að sömu afurðir verða þá ekki seldar til annarra aðila. Ég fullyrði hins vegar, miðað við þær upplýsingar sem ég hef fengið, að strax í dag væri unnt að gera samninga um sölu til notenda kísilmálms. Ég er einnig viss um að nú þegar væri unnt að gera samninga við aðila sem annast sölu á kísilmálmi. Í þeim samningum yrðu að sjálfsögðu fyrirvarar, bæði um verð og gæði. Ég tel hins vegar að á þessu stigi sé ekki heppilegt að gera slíka samninga. Ég tel að í þessu fyrirtæki eigum við Íslendingar sjálfir að verða virkir aðilar í sölumálum þessarar afurðar, virkari en við höfum hingað til verið í sölustarfsemi vegna annarra stóriðjuafurða hér á landi. Í þessu efni höfum við góðan tíma til stefnu því að gangsetning verksmiðjunnar á allnokkuð langt í land og líklegasti tíminn er haustið 1988.
Í þriðja lagi var rætt allnokkuð um væntanlega eignaraðild annarra aðila að þessu fyrirtæki. Það hefur verið upplýst hér í Sþ. við fyrri umr. þessa máls að unnið hefur verið að því undanfarna mánuði að leita eftir aðilum erlendis sem væru reiðubúnir að gerast eignaraðilar að slíku fyrirtæki og ganga til samvinnu við Íslendinga. Sá þáttur var látinn liggja eftir í undirbúningi þessa máls. Hér er því alveg um óplægðan akur að ræða og það tekur vafalaust nokkurn tíma. Vafalaust gætum við Íslendingar annast einir þetta verkefni. Við yrðum þá að taka að láni stofnkostnað verksmiðjunnar 1.8 milljarð eða 65 millj. dollara. Hins vegar fer það ekki á milli mála að hér er um áhættusaman rekstur að ræða. Áætlanir og reynsla, bæði okkar og annarra, sýna að hér getur verið um mjög ábatasaman rekstur að ræða. En reynslan sýnir einnig að slíkur rekstur þarf að taka á sig erfiðleikasveiflur og vera reiðubúinn að tapa fé. Þetta sýnir reynslan af járnblendiverksmiðjunni okkur vel.
Þetta er auðvitað spurning um mat. Hvað eigum við að taka mikla áhættu í von um mikinn gróða þegar vel gengur en vera þá reiðubúin til að taka á okkur tap þegar illa gengur. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að dreifa þessari áhættu og deila henni með öðrum. Þess vegna sé nauðsynlegt að vinna áfram að því að fá erlenda aðila með í þetta fyrirtæki. Ekki má heldur gleyma því að sú staðreynd að verksmiðjan er staðsett hér á landi hefur auðvitað í för með sér mikinn hag fyrir okkur Íslendinga. Við erum ekki aðeins að seilast eftir gróða af rekstri þessa fyrirtækis. Slíkt fyrirtæki þarfnast margvíslegrar þjónustu og talið er að hverju starfi í slíkri verksmiðju fylgi 3–5 önnur störf í alls konar annarri þjónustu. Við höfum einnig hag af orkusölunni og það eru mjög rangar þær fullyrðingar, sem dynja yfir okkur í síbylju, að almenningur greiði niður rafmagnsverð til stóriðjufyrirtækjanna. Sýnt hefur verið svo oft rækilega fram á það, bæði í umr. hér og með skýrslugerðum, m. a. frá Orkustofnun, að það er ekki rétt heldur hafa verið færð að því mjög sterk rök að rafmagnsverð væri hér hærra ef við hefðum ekki getað virkjað stórt með stóriðjufyrirtækin að bakhjarli.
Þátttaka erlendra aðila í þessu fyrirtæki er einnig mjög líkleg til að styrkja fyrirtækið, auðvelda markaðssetningu og styrkja tækniþekkingu. Íslendingar hafa sýnt að þeir eiga mjög auðvelt með að tileinka sér slíka tækni. Þó ber að hafa í huga í þessu sambandi að kísilmálmvinnsla er tæknilega flóknari framleiðsla en t. d. járnblendi og ál og gæðin eru mjög margvísleg og ráða miklu um verð afurðanna. Það er því nauðsynlegt að mjög náið samstarf sé við aðila sem nota hágæða kísilmálm í efnaiðnaði. Þess vegna væri mjög æskilegt ef unnt væri að fá slíkan aðila til að eiga þetta fyrirtæki með okkur.
Þátttaka erlendra fyrirtækja er einnig líkleg til að vera mælikvarði á það hvort fyrirtækið sé í rauninni arðbært og hvort rétt sé að hætta fé sínu í það. Það stuðlar einnig að því að viðskiptaleg sjónarmið ráði í þessum rekstri. Því miður höfum við slæma reynslu af því, Íslendingar, að í hreinum ríkisfyrirtækjum hafa önnur sjónarmið oft verið látin ráða í rekstrinum, bæði félagsleg sjónarmið ýmiss konar og byggðasjónarmið, sem hafa aftur leitt til þess að slík fyrirtæki hafa verið rekin með miklu tapi og mörg þeirra gengið illa.
Önnur efnisbreytingin sem brtt. á þskj. 927 felur í sér frá upphaflegu till. miðar að því að jafnframt verði leitað samstarfs við innlenda aðila um eignarhald á þessu fyrirtæki. Þá er haft í huga bæði að bjóða t. d. sveitarfélögum, sem eru á þeim slóðum sem verksmiðjan rís, aðild og jafnframt kemur til greina að hafa almennt útboð á hlutabréfum fyrirtækisins á innlendum markaði. Ég vek hins vegar athygli á því að í lögum um kísilmálmverksmiðjuna er áskilið að samstarfssamningar, sem gerðir kunna að vera, verði lagðir fyrir Alþingi til staðfestingar.
Þá var allmikið rætt í n. hvenær stefnt skyldi að gangsetningu. Ljóst er að byggingartími þessarar verksmiðju er 32 mánuðir og í þessu sambandi skiptir líka máli hvenær unnt er að fá orku til fyrirtækisins. Sérstaklega var leitað álits Landsvirkjunar í því efni og um það segir í bréfi Landsvirkjunar, með leyfi hæstv. forseta:
„Landsvirkjun getur afhent kísilmálmverksmiðjunni forgangsorku frá þeim tíma sem Blönduvirkjun hefur framleiðslu sem nú er áætlað að verði 1988. Fram til þess tíma kemur til greina að afhenda orku með takmörkuðu afhendingaröryggi, þ. e. afgangsorku og þá á lægra verði. Ef kísilmálmverksmiðjan óskar eftir orku áður en Blönduvirkjun kemst í gagnið, t. d. frá 1. sept. 1986, má reikna með að í meðalvatnsári verði hægt að fullnægja 80–90% orkuþarfarinnar, en e. t. v. aðeins 40–50% hennar í mjög þurru ári. Er hér átt við orkuþörf eins ofns. Fyrir tvo ofna má búast við hlutfallslega minni orkuafhendingarmöguleikum.
Auk hugsanlegrar skerðingar á orku vegna vatnsskorts má búast við einhverri skerðingu vegna aflsskorts, sérstaklega veturinn 1987–1988. Slík skerðing yrði þó vart mikil að orkumagni en getur haft veruleg áhrif á rekstrarmála verksmiðjunnar. Þá benda nýjustu athuganir Landsvirkjunar til þess að vandamál vegna flutnings orku eftir byggðalínum til kísilmálmverksmiðjunnar megi leysa þótt Sprengisandslína komi ekki fyrr en undir lok þessa áratugar, en treysta verður því að ekki dragi úr núverandi orkuframleiðslugetu Kröfluvirkjunar.“
Skv. þessu er því hugsanleg gangsetning fyrri ofns reyndar þegar haustið 1986. Það held ég að sé alls ekki raunhæft, m. a. vegna byggingartíma verksmiðjunnar. Hugsanleg gangsetning fyrri ofns gæti hins vegar verið raunhæf 1987, en haustið 1988 er raunhæft að hugsa sér að verksmiðjan gæti verið komin með full afköst.
Þá var rætt í n. um mengunarvandamál varðandi slíkan rekstur. Fram kom að gert er ráð fyrir að verksmiðjan sé búin sambærilegum mengunarútbúnaði og verksmiðjan á Grundartanga, sem þýðir að ekkert ryk fer út. Hér er því alveg um ryklausa starfsemi að ræða. Enn fremur má benda á í því sambandi að hráefni framleiðslu kísilmálms eru hreinni en framleiðslu járnblendis og er það að sjálfsögðu þessu fyrirtæki í hag þegar borið er saman við járnblendi. Það er þess vegna alrangt þegar það er fullyrt, eins og hér í eldhúsdagsumræðunum á dögunum, að núv. hæstv. ríkisstj. væri að bjóða börnum okkar þá framtíð að þau „andi að sér kísilryki“ eins og sagt var í umr. Þetta er rangt, sýnir bæði ótrúlegt ofstæki og jafnframt rökþrot þeirra sem hafa valið sér það hlutverk að berjast gegn orkufrekum iðnaði á Íslandi.
Sú spurning kom enn fremur upp í n. hvers vegna Alþingi væri að afgreiða þetta mál frá sér nú. Má segja að sá ágreiningur, sem speglast í tveimur nál., hafi komið fram í þeirri spurningu. Ég hygg að rétt sé að fullyrða að undirbúningi verði varla haldið lengra áfram nema fá fram vilja hæstv. Alþingis um þetta mál. Að því líður að við þurfum að hrökkva eða stökkva. Ákvörðun Alþingis nú mun auðvelda mjög frekari undirbúning, bæði að því er snertir markaðsmál og að fá fyrirtæki til að gerast eignaraðilar. Undirbúningur varðandi þá þætti mundi fá á sig mun meiri alvörublæ ef Alþingi tæki sína ákvörðun. Við skulum hafa í huga að það eru fleiri aðilar í heiminum að undirbúa slíkar verksmiðjur og leita eftir samstarfi við eignaraðila og þá jafnframt sömu aðila og við höfum verið að ræða við. Þeir sem áhuga hafa eru að athuga alla þessa möguleika í einu og bera þá saman. Ekkert knýr þessa aðila til að taka ákvörðun ef þeir skynja að okkar ákvörðun eigi eftir að velkjast í kerfinu um óákveðinn tíma. Þess vegna mun ákvörðun Alþingis nú styðja og styrkja þá viðleitni að fá eignaraðila til samstarfs um þetta mál.
Þá er þess enn fremur að geta að einlægur ásetningur og ákveðinn vilji okkar í þessu efni getur einnig orðið til að draga úr áhuga annarra sem hafa slíkan verksmiðjurekstur í huga. Heimsmarkaðurinn þolir ekki margar nýjar verksmiðjur á þessu sviði á sama tíma. Því er það hagsmunamál fyrir okkur að koma í veg fyrir að aðrir fari í gang á sama tíma og við. Það hníga því mörg rök að því að Alþingi taki ákvörðun nú. Þess vegna hefur þessi till. verið flutt og þess vegna styður meiri hl. atvmn. þessa afgreiðslu. Í því felst að sjálfsögðu að ríkisstj. er treyst til að taka ekki endanlega ákvörðun fyrr en besta mögulega vissa liggur fyrir um að fyrirtækið sé vel arðbært, að markaður sé tryggður og að öflugur eða öflugir eignaraðilar séu reiðubúnir til samstarfs við okkur um þennan rekstur.
Ég vil einnig vekja athygli á því að því fer fjarri að Alþingi sé búið að sleppa hendinni af þessu máli þó að það verði afgreitt nú í þessu formi. Í fyrsta lagi er rétt að vekja athygli á að samstarfssamninga við hugsanlega eignaraðila þarf að leggja fyrir Alþingi til staðfestingar skv. beinum ákvæðum laganna. Ég vil enn fremur benda á að ef kveðja á til eignaraðila, einn eða fleiri, innlenda eða erlenda, sem ættu meira en 49% í fyrirtækinu, þá þarf enn fremur sérstaka lagabreytingu til. Ég vil einnig benda á að heimildir laganna um ríkisábyrgð ná aðeins til hluta þess sem þyrfti ef ríkissjóður ætlaði að eiga fyrirtækið á eigin spýtur. Ríkisábyrgðin þyrfti að vera upp á 700 millj. kr. en lögin heimila aðeins 300 millj.
Ég vil einnig benda á í þessu sambandi að hlutafé skv. lögunum yrði 200 millj. af hálfu ríkisins en þyrfti að verða 530 millj. a. m. k. skv. þeim áætlunum sem uppi eru í dag. Þessar tölur hafa allar hækkað frá því sem í lögunum greinir vegna verðbólgunnar. Það er því ljóst að Alþingi þarf að fjalla sérstaklega um þennan þátt síðar, einkum ef svo færi að ríkisstj. ætlaði okkur að eiga þetta fyrirtæki að miklum meiri hluta sem ég tel reyndar óráðlegt. Alþingi hefur því enn öll tök á þessu máli.
Varðandi brtt. á þskj. 927 þá hef ég þegar gert grein fyrir annarri efnisbreytingunni sem felst í henni frá upphaflegu tillögunni. Hinn efnisbreytingin er meira formlegs eðlis, þ. e. hún miðar að því að tryggja að þær heimildir, sem í lögunum greinir, kvikni við samþykkt þessarar þáttill. og breytingin miðar að því að tryggja að ályktun Alþingis sé í fullu samræmi við 3. gr. laga um kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði nr. 70/1982.
Ég hef lokið máli mínu, herra forseti, og ég ítreka það sem ég sagði áður, það er tillaga okkar í meiri hl. atvmn. að þessi þáltill. verði samþykkt með þeirri breytingu sem gerð hefur verið grein fyrir.