19.05.1984
Sameinað þing: 92. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6365 í B-deild Alþingistíðinda. (5875)

91. mál, fiskeldi og rannsóknir á klaki sjávar- og vatnadýra

Frsm. meiri hl. (Birgir Ísl. Gunnarsson):

Herra forseti. Atvmn. hefur fjallað um till. til þál. um fiskeldi og rannsóknir á klaki og eldi sjávar- og vatnadýra.

N. ræddi þessa till. á nokkrum fundum og fékk umsagnir frá eftirtöldum aðilum: Búnaðarfélagi Íslands, Rannsóknaráði ríkisins, sjávarútvegsráðuneyti, Landssambandi stangveiðifélaga og Hafrannsóknastofnun. N. komst ekki að sameiginlegri niðurstöðu um till. Meiri hl. n. leggur til að till. verði vísað til ríkisstj. og bendir í því sambandi á eftirfarandi:

1. Í umsögn Rannsóknaráðs ríkisins um þetta mál segir m. a.:

„Á vegum Rannsóknaráðs ríkisins er nú unnið að úttekt á stöðu og framtíðarhorfum í eldi sjávar- og vatnadýra og annarra lífvera í sjó og vatni. Í athugun þessari er m. a. unnið að hliðstæðri upplýsingaöflun og óskað er eftir í umræddri þáttill. (4., 5. og 6. liður). Tilgangur athugunarinnar er m. a. að gefa stjórnvöldum betri innsýn í möguleika þessa atvinnusviðs og leggja grundvöll að stefnumótun varðandi rannsóknir og aðgerðir til stuðnings þessu atvinnusviði.“

2. Í umsögn sjútvrn. um till. segir m. a.:

„Í júnímánuði s. l. hóf sjútvrn. undirbúning að skipan nefndar til að undirbúa heildarlöggjöf um fiskeldi í sjó sem síðan yrði lagt fram á Alþingi sem frv. til laga. Starf nefndarinnar átti einnig að ná til tillögugerðar um stjórnsýslulega yfirstjórn fiskeldismála, leyfisveitingar til fiskeldis í sjó, fjármögnun framkvæmda á þessu sviði og könnunar á hvaða fisktegundir væru heppilegastar til eldis miðað við markaðsmöguleika og arðsemi. Strax við undirbúning nefndarstarfsins kom í ljós að starfandi var nefnd á vegum Rannsóknaráðs ríkisins sem skipuð var haustið 1982 og var sú nefnd að vinna að sömu hlutum og fyrirhuguð nefnd á vegum sjútvrn. átti að vinna að. Það var því skoðun sjútvrn. að rétt væri að bíða með nefndarstarfið þar til niðurstaða af nefndarstarfi Rannsóknaráðs ríkisins lægi fyrir. Þeir sem tilnefndir höfðu verið í nefnd sjútvrn. þegar nefndarstarfinu var frestað voru frá sjútvrn. Finnur Ingólfsson, frá Fiskifélagi Íslands Ingimar Jóhannsson og frá Hafrannsóknastofnun Björn Björnsson. Eftir þeim upplýsingum sem m. hefur fengið frá ritara nefndar Rannsóknaráðs, Úlfari Antonssyni, mun nál. þeirra nefndar verða tilbúið innan fárra vikna.

Í þáttill. þeirri sem hér er til umsagnar eru tilteknir sex þættir sem fyrstu aðgerðir á sviði fiskeldis og rannsókna á klaki og eldi sjávar- og vatnadýra. Samkv. upplýsingum, sem ráðuneytið hefur frá Úlfari Antonssyni, verður í nál. nefndar Rannsóknaráðs svar við flestum ef ekki öllum þeim þáttum sem tilgreindir eru í þáltill.

Það er ætlun sjútvrn. að um leið og nál. nefndar Rannsóknaráðs ríkisins liggur fyrir hefji nefnd sjútvrn. störf og með þau markmið að leiðarljósi sem fyrr eru nefnd.“

Í þriðja lagi bendir meiri hl. atvmn. á að þann 20. apríl 1982 var samþykkt till. til þál. um svipað efni. 1. flm. þeirrar till. var hv. 11. landsk. þm., Egill Jónsson, en þar var ríkisstj. falið að hlutast til um að gera áætlun um skipulegt átak í fiskræktarmálum.

Með tilliti til þess sem að ofan greinir leggur meiri hl. n. til að þessari till. verði vísað til ríkisstj.

Ég tek það sérstaklega fram að n. telur að hér sé um merkasta mál að ræða og nauðsynlegt sé að fylgja því eftir að að þessum málum verði unnið af festu af hálfu hæstv. ríkisstj.