19.05.1984
Sameinað þing: 92. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6367 í B-deild Alþingistíðinda. (5877)
91. mál, fiskeldi og rannsóknir á klaki sjávar- og vatnadýra
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég er 1. flm. þessarar till., en með mér fluttu hana hv. þm. Geir Gunnarsson, Ragnar Arnalds og Steingrímur Sigfússon, og ég þakka hv. atvmn. fyrir hennar vinnu í sambandi við þetta efni. Ég get út af fyrir sig sætt mig við þá niðurstöðu meiri hl. nefndarinnar að vísa till. til ríkisstj. með þeim áherslum sem fram komu í nál. og máli formanns nefndarinnar hér áðan og ég vona að eftir verði fylgt þeim atriðum sem lögð er áhersla á í þessari till.
Efnisatriði hennar, eins og hún var hér fram lögð, voru þrjú. Það var að undirbúa áætlun um eflingu fiskeldis, jafnt sjávar- og vatnadýra, að sköpuð yrði aðstaða til víðtækra rannsókna og tilrauna með aðra þætti, svo sem klak og seiðaeldi, við íslenskar aðstæður, en slíka aðstöðu vantar nú mjög hérlendis, þannig að við getum byrjað að vinna upp það forskot sem aðrar þjóðir hafa gagnvart okkur á þessu sviði, og í þriðja lagi að samið verði á grundvelli áætlunar um eflingu fiskeldis frv. til laga um fiskeldi og það lagt fyrir Alþingi sem fyrst — tilgreint var í till. í þingbyrjun 1984.
Þetta eru þrjú efnisatriði þessarar þáltill. og síðan fylgdu ábendingar um fyrstu aðgerðir sem æskilegt væri að sinna.
Ég tel að frv. um þetta mál, heildarlöggjöf um fiskeldi, sem mikil nauðsyn er á að undirbúið verði og lagt fyrir þingið, verði tæpast unnið svo vel sé nema á grundvelli áætlunar sem gert er ráð fyrir og sem upplýst hefur verið að Rannsóknaráð ríkisins vinni nú sérstaklega að. Er það vissulega ánægjuefni og var mér raunar kunnugt um þá vinnu þegar þessi till. var fram lögð og vitnaði til hennar í framsöguræðu fyrir þessu máli.
Ég tel því að það sem bent er á í minnihlutaáliti varðandi þetta séu síst nýmæli, þ. e. að flytja þurfi frv. að heildarlöggjöf í þessum efnum í stað þáltill. Það er einmitt slíkt frv. sem lagt er til að samið verði á grundvelli áætlunar um þetta stóra mál, sem á að geta ef rétt er á haldið orðið stórfelld lyftistöng í íslensku atvinnulífi í framtíðinni, en til þess þarf að koma bæði meiri stuðningur við þessi efni, auknar rannsóknir og meira fjármagn.
Ég mun að sjálfsögðu fylgjast með því hver framvinda verður á vegum ríkisstj. í þessu efni og mun taka þetta mál hér upp eftir því sem ástæða er til á seinni stigum í þinginu eftir því sem ég fæ við komið.
Vitnað var í áliti meiri hl. nefndarinnar til þáltill. frá 20. apríl 1982. Hún var vissulega góðra gjalda verð, en hún varðaði fyrst og fremst fiskræktar- og veiðimál svokallaðra vatnafiska, en ekki þann þátt sem snýr að sjávareldi. Að því leyti er þessi till., sem hér er lagt til af meiri hl. nefndarinnar að verði vísað til ríkisstj., mun víðtækari. Ég vænti þess að næsta þing líði ekki svo að fyrir þingið verði ekki lagt frv. um þessi efni, heildarlöggjöf, þar sem tekið verði á öllum þeim mörgu þáttum sem löggjafinn þarf að taka afstöðu til um þessi mál.