19.05.1984
Sameinað þing: 92. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6375 í B-deild Alþingistíðinda. (5892)

28. mál, afnám bílakaupafríðinda embættismanna

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég get lýst efnislega fylgi við þá till. sem komin er frá hv. allshn. En mér finnst þó orðalag hennar harla óskýrt þar sem talað er um að felldar verði úr gildi þær reglur sem nú kunna að gilda um fríðindi þau sem til umr. eru í till. Það er talað um að fella burtu reglur um fríðindi en það er ekkert sagt um það hvert eigi að stefna. Það er hægt að leggja þetta út með þeim hætti af orðanna hljóðan að þetta geti verið einfaldlega samningsatriði við hvern aðila þó að mér sé fyllilega ljóst að slík er ekki hugsun nefndarinnar og ekki tillögumanna að upphaflegu till., þar sem heitið er „afnám bílakaupafríðinda embættismanna.“

Ég vek athygli á þessu og ég tel nauðsynlegt að þeirri túlkun að þessi fríðindi verði afnumin verði haldið til haga í sambandi við útfærslu þessarar till. og að orðalagi hennar verði breytt og það gert skýrara.

Þá er annað efni sem ég vildi einnig vekja athygli á í sambandi við þetta mál. Það varðar þau fríðindi sem ráðherrar hafa notið lögum skv. varðandi bifreiðakaup og mjög hafa verið til umr. á liðnum árum. Hér var lagt fram í hv. Ed. snemma á þinginu sem 12. mál þingsins sérstakt frv. til l. um breytingu á lögum um tollskrá o. fl., lögum nr. 120/1976, um það að fella brott úr tollskrárlögum orðið „ráðherra“. Tekur það til þeirra fríðinda sem ráðh. hafa notið lögum skv. í sambandi við bílakaupamál. Ég hefði sannarlega kosið að í þessari þáltill. hefði verið tekið einnig á því máli og tel það nokkur mistök í málsmeðferð hjá hv. þm. sem fluttu frv. til l. um afnám bílakaupafríðinda ráðh. að þeir skyldu ekki einnig taka á því í þáltill., þannig að hvort tveggja gæti komið til afgreiðslu eftir því hvernig málin bæri að. Ég minni á að þessi mál, sem snerta bílakaupafríðindi ráðh., komu eðlilega mjög til umr. meðal almennings og hér á þinginu að ég hygg nokkuð þegar upplýst var hvernig ráðh. í núv. ríkisstj. hefðu staðið að málum varðandi sjálfa sig í þeim efnum og einnig nokkrir þeirra ráðh. sem skipuðu síðustu ríkisstj. Ég varð fyrir afar miklum vonbrigðum þegar ég varð þess áskynja með hvaða hætti ráðh. í núv. ríkisstj. og hluti ráðh. í fyrrv. ríkisstj. fóru með þau réttindi sem þeir höfðu skv. tollskrárlögum um þessi efni réttindi sem ég taldi að menn hefðu afsalað sér í reynd þegar flutt var frv. til laga um þessi efni á 100. löggjafarþingi, stutt af fjh.- og viðskn. Nd., öllum nm. í þeirri deild sem voru sammála um að mæla með samþykkt þess frv. Það fékk ekki afgreiðslu á því þingi og í skjóli þess að ekki var búið að afnema þetta ákvæði gengu ráðh. í núv. ríkisstj. og hluti ráðh. sem sat í fyrrv. ríkisstj. fram með þeim hætti sem frægt varð að endemum.

Það liggur fyrir að á meðan síðasta ríkisstj., ráðuneyti dr. Gunnars Thoroddsens, sat voru þessar heimildir ekki notaðar og ráðh. Alþfl. og Alþb. höfðu afsalað sér þeim og lýst því yfir með formlegum hætti, þegar í ráðuneyti Ólafs Jóhannessonar á sínum tíma, að þeir mundu ekki nýta sér þær heimildir sem þar væri um að ræða.

Nú minnist ég þess að hæstv. forsrh. gaf einhverja yfirlýsingu, hvort það var hér á þinginu, í öllu falli í fjölmiðlum, um meðferð mála varðandi bílakaupafríðindi ráðherra eftir að upplýst varð um þau hneykslismál, sem ég verð að kalla svo, sem varða bílakaup ráðh. í núv. ríkisstj. Ég held að það væri ástæða til í tengslum við þessa þáltill., án þess að ég vilji hafa hér frekara mál um þessi efni, að hæstv. forsrh. rifji það upp fyrir þingheimi hverjar voru þær reglur sem hann taldi réttmætt að settar yrðu, hvað hefur verið aðhafst í þessum efnum frá því að hann gaf yfirlýsingar varðandi bílakaupamál ráðh. s. l. haust.