19.05.1984
Sameinað þing: 92. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6377 í B-deild Alþingistíðinda. (5894)
28. mál, afnám bílakaupafríðinda embættismanna
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Aðeins örfá orð vegna þeirra ummæla sem hv. 5. þm. Austurl. lét hér falla um frv. er ég flutti snemma á þessu þingi og fjallaði um breytingu á lögum um tollskrá og afnám bílafríðinda ráðh. Hann harmaði það að það efnisatriði skyldi ekki líka tekið upp í þessa þáltill. Þegar ég flutti þessi tvö mál þótti mér óeðlilegt að taka upp í þáltill. mál sem ég hafði þegar flutt í frv.-formi. Sú er nú hin einfalda skýring. Hins vegar er af því frv. þá sorgarsögu að segja að það fékk umfjöllun í fjh.- og viðskn. Ed. Óskað var upplýsinga frá ríkisstj., sem mig rekur nú ekki minni til að hafi rekið á fjörur n., en meiri hl. n. vildi vísa málinu til ríkisstj. Ég sætti mig ekki við þá málsmeðferð og kaus þá heldur að málið dagaði uppi svo að hægt væri með auðveldasta móti að taka það aftur upp að nýju á Alþingi. Það mun verða gert.