21.05.1984
Efri deild: 109. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6407 í B-deild Alþingistíðinda. (5921)
167. mál, veiting ríkisborgararéttar
Frsm. (Eiður Guðnason):
Virðulegi forseti. Í Nd. varð lítils háttar breyting á þessu frv. sem við höfum þegar afgreitt héðan en að höfðu samráði við nm. Eftir að hafa rætt við formann allshn. Nd. þótti ekki ástæða til að kalla saman fund í n. af þessu tilefni. En nm. eru sammála um að mæla með samþykkt frv. eins og það nú liggur fyrir komið frá Nd.