21.05.1984
Efri deild: 109. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6408 í B-deild Alþingistíðinda. (5923)
40. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. 1. minni hl. (Davíð Aðalsteinsson):
Virðulegi forseti. Félmn. hefur fjallað um þetta frv. í nokkurn tíma. Þetta er 40. mál þingsins og hefur því augljóslega legið fyrir þinginu nokkuð lengi. Eins og kunnugt er urðu breytingar á frv. við meðferð í Nd. Upphaflega var gert ráð fyrir því í frv. að álagðir fasteignaskattar á sumarbústaðalóðir og mannvirki á þeim, eins og frv. fjallar raunar um, færu í 0.25%, það yrði hámarksprósenta varðandi álagningu fasteignagjalda á þessi mannvirki og sumarbústaðalóðir. Frv. breyttist í meðförum Nd. á þá lund að þessi hámarksprósenta af fasteignamati er hækkuð í 0.50%. Ég vil út af fyrir sig ekki gera lítið úr þeirri samstöðu sem virtist vera um málið í Nd. Eins og fram kemur á þskj. rita allir nm. félmn. Nd. undir álitið og fylgja þeim breytingum sem gerðar voru á frv. Enda þótt samstaða hafi ríkt um þetta mál í Nd. og við viljum síður en svo, 1. minni hl. n. Ed., vanmeta þá samstöðu treystum við okkur ekki til að rýra möguleika sveitarfélaga til tekjuöflunar með þeim hætti sem lagt er til í þessu frv.
Eins og fram kemur í málsskjölum n. Nd. sendu fjölmörg sveitarfélög og ekki síst samtök þeirra umsagnir um þetta mál þar sem mjög er lagst gegn þeirri breytingu sem frv. felur í sér.
Sannleikurinn er sá að í þessu frv. er alls ekki gert ráð fyrir því með hvaða hætti sveitarfélögin geti bætt sér upp þann óhjákvæmilega tekjumissi sem leiddi af samþykkt þessa frv. Við í 1. minni hl. félmn. teljum að það eigi fremur að auka sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaganna í landinu en að rýra hann.
Ég vil aftur minnast á það samkomulag sem virðist hafa orðið um þetta mál í Nd. og við viljum alls ekki vanmeta. En við gerum meira úr góðu samkomulagi og samstarfi Alþingis við sveitarfélögin í landinu, ekki síst þegar um er að ræða tekjuöflun sveitarfélaganna því að engum blöðum er um það að fletta að fjölmörg og þung verkefni eru lögð á herðar sveitarfélögunum og það er skylda okkar hv. alþm. að sjá svo til að þau hafi svigrúm til að afla tekna til að standa undir þeim miklu kröfum sem lagðar eru á herðar þeim.
Ég hef það fyrir satt að samstarf sveitarfélaganna og sumarbústaðaeigenda í landinu sé mjög gott. Fulltrúar sumarbústaðaeigenda hafa tjáð mér að þetta samstarf væri svo gott að þar bæri tæpast skugga á nema í undantekningartilvikum. Ég er sannfærður um að hv. alþm. vilja ekki verða til að spilla þessu góða samstarfi. Til að ekkert fari á milli mála um þann meginrökstuðning, sem við í 1. minni hl. félmn. setjum fram í þessu máli, vil ég, með leyfi virðulegs forseta, lesa upp það sem stendur í okkar nál.:
„Sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga ber að auka fremur en að skerða. Frv. felur í sér einhliða skerðingu á tekjumöguleikum sveitarfélaga. Það er skoðun undirritaðra að breytingu eigi ekki að gera á aðstöðu sveitarfélaga til tekjuöflunar án samráðs við þau.
Föstudaginn 4. maí var haldinn samráðsfundur ríkis og sveitarfélaga í samræmi við samstarfssáttmála þessara aðila sem var undirritaður 20. jan. s. l. af félmrh. og formanni Sambands ísl. sveitarfélaga. Í lok samráðsfundarins samþykktu aðilar m. a. eftirfarandi:
„Fulltrúar sveitarfélaganna fagna því ákvæði í stefnuyfirlýsingu ríkisstj. að sveitarstjórnir ákveði sjálfar gjaldskrár fyrir þjónustu sveitarfélaga og fyrirtækja þeirra.
Fulltrúar sveitarfélaganna leggja á það áherslu að sjálfsákvörðunarréttur sveitarstjórna verði virtur á fleiri sviðum eigin fjármála, m. a. með því að veita þeim aukið frjálsræði um nýtingu tekjustofna sinna.
Aðilar eru sammála um að hefja viðræður um endurskoðun á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, hlutverk Jöfnunarsjóðs og skipan sérstakrar nefndar í því skyni.“
Með tilliti til þess, sem að framan greinir, leggjum við til að frv. verði vísað til ríkisstj.“
Afstaða okkar er fyrst og fremst á þá lund að sveitarfélögunum beri aukið frjálsræði frá því sem nú er til að ráða og sinna eigin málum. Og að lokum, ég er sannfærður um að allir hv. alþm. eru á þeirri skoðun að breytingar í þessa átt séu varhugaverðar án samráðs við sveitarfélögin í landinu.