21.05.1984
Efri deild: 109. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6409 í B-deild Alþingistíðinda. (5924)
40. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. 2. minni hl. (Helgi Seljan):
Virðulegi forseti. Þetta nál. okkar er með þeim undrum að enginn er skráður framsögumaður. Það stafar af því að enginn af okkur, sem undir þetta nál. skrifuðum, var svo 100% sannfærður um að við værum að mæla fyrir nógu góðu máli að við vildum verða þar framsögumenn. En ég hlýt að taka þetta á mig vegna þess að svo stendur á að hinir, sem undir þetta nál. skrifa, eru forseti deildarinnar og 1. varaforseti. En nál. hljóðar svo:
„Nefndin hefur fjallað um frv. en ekki orðið sammála um afgreiðslu þess.
Frv. var breytt í meðförum Nd. í samkomulagsátt þannig að prósentuhlutfallið var hækkað úr 1/4% í 1/2% af fasteignamati sumarbústaðalóða og mannvirkja á þeim.
Þó að undirritaðir nefndarmenn telji að það sé varhugavert af Alþingi að setja löggjöf sem skerðir einhliða tekjustofna sveitarfélaganna fallast þeir á þessa breytingu til samkomulags. 2. minni hl. leggur því til að frv. verði samþykkt eins og það kemur frá Nd.“
Ég hlýt að taka það fram fyrir hönd okkar sem þarna skrifum undir, hv. þm. Stefáns Benediktssonar, Salome Þorkelsdóttur og þess sem hér stendur, að við leggjum ekki síður áherslu á sjálfstæði sveitarfélaganna og nauðsyn þeirra á því að halda sínum tekjustofnum. Við segjum einnig að það sé vafasamt í meira lagi að taka eitt atriði þannig út úr. En mál þetta hefur verið sótt af miklu kappi og við erum öll þannig stödd að við höfum fallist á þá málamiðlun sem gerð var í Nd. þar sem þetta prósentuhlutfall var frá upphaflegu frv. hækkað úr 1/4% í 1/2% af fasteignamati sumarbústaðalóða og mannvirkja á þeim. En við segjum það enn og aftur að við höfum ekki haft tök á að kynna okkur t. d. álagningarreglur almennt hjá þeim sveitarfélögum sem þetta mál snertir mest. Við höfum heldur ekki haft tök á því að kynna okkur hvernig háttar samskiptum þessara sveitarfélaga og sumarbústaðaeigenda almennt og erum því ekki nægilega vel í stakk búin til að gera svo grein fyrir þessu máli sem við vildum. Með samkomulaginu, sem gert var í Nd. og við vorum nær beinir aðilar að, hljótum við að mæla með því að frv. verði samþykkt eins og það kom þaðan.