21.05.1984
Efri deild: 109. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6410 í B-deild Alþingistíðinda. (5927)

341. mál, Íslensk málnefnd

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Virðulegi forseti. Menntmn. hefur fjallað um þetta mál og orðið sammála um afgreiðslu þess eins og það var afgreitt frá Nd.

Í athugasemdum með frv. kemur fram að við samningu þess hafi einkum verið stuðst við ákvæðin um hlutverk Íslenskrar málnefndar og helstu verkefni í reglum þeim sem nefndin hefur starfað eftir. Reglur um starfsemi Íslenskrar málnefndar voru staðfestar af menntmrh. 10. mars 1965. Í meginatriðum eru þau ákvæði felld inn í frv. Jafnframt hefur verið höfð hliðsjón af lögum og reglum sem í gildi eru um aðrar norrænar málnefndir. Síðast en ekki síst hefur verið tekið mið af fenginni reynslu síðan Íslensk málnefnd var sett á fót.

Með samþykkt þessa frv. er í meginatriðum verið að koma í lagabúning því verklagi sem er um þessar mundir. Eins og kunnugt er var eining um afgreiðslu málsins í Nd., en gerðar voru nokkrar breytingar á frv. Þær breytingar voru gerðar með samþykki allra nefndarmanna í Nd. Það skal tekið fram að Nd.-nefndin boðaði á sinn fund fulltrúa frá heimspekideild Háskólans, Orðabók Háskólans, Málvísindastofnun og Íslenskri málnefnd. Þessir aðilar höfðu athugasemdir fram að færa og voru þær teknar til greina í þeim brtt. sem ég gat um áðan.

Eins og ég hef þegar getið um leggur nefndin til að frv. verði afgreitt eins og það kom frá Nd.