21.05.1984
Efri deild: 110. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6436 í B-deild Alþingistíðinda. (5955)

281. mál, útflutningsgjald af grásleppuafurðum

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Ég lét ekki þau orð falla að ég hefði verið að beina því til hv. þm. að hún hefði skotið sér undan því að mæta, það er af og frá. Ég vissi vel að boðun á þennan fund var með sérstökum hætti. Ég var aðeins að nefna að það einkennilega hefði gerst að þeir, sem ekki gátu mætt á fundinum, urðu á annarri skoðun en þeir sem mættu þarna. (KolJ: Þú vissir það fyrir fram.) Já, já, ég var ekkert að bera það á hv. þm. að hún hefði verið að skipta um skoðun eftir að við vorum búnir að afgreiða málið. Nákvæmlega sama gildir um hv. þm. Karl Steinar Guðnason.

Við vorum ekki að afgreiða málið út frá því að þau voru fjarstödd, það var af og frá.