21.05.1984
Neðri deild: 102. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6454 í B-deild Alþingistíðinda. (5996)

221. mál, jarðalög

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Þetta frv. hefur komið hér til nokkurrar umr. síðustu dagana sem von er og verið bent á þá ofstjórn sem í því felst og það pappírsfargan og stimplastúss sem menn hafa búið við og eru jafnvel í enn ríkara mæli að búa til með þessu frv. Það er stefnumark þessa frv., að sagt er, að leggja niður Landnám ríkisins og af því ætla menn að hafa sparnað. En ekki eru nú tekin út mörg verkefnin engu að síður, heldur eru þau fyrst og fremst flutt til, þ. e. að sá stimpill sem Landnámið hélt á er ýmist færður í hendur landbrh. eða Búnaðarfélags Íslands nema hvort tveggja sé. Ég sé því ekki betur en að mikið af því starfi sem menn hafa unnið við að yfirfara pappíra og skoða eigi áfram að haldast. Þá hlýtur sú spurning að vakna hvort menn nái þeim sparnaði sem þeir þykjast vera að stefna að. Ef verkefnunum fækkar ekki heldur eru einungis flutt meira og minna fram og til baka í kerfinu þarf væntanlega hendur á nýjum stöðum til að halda á þeim stimplum sem áður var haldið á einhvers staðar annars staðar í kerfinu. Að því leytinu óttast ég að hér séu menn að blekkja sig, að sá sparnaður sem menn hafi reiknað út muni ekki komast til skila.

Nú held ég að Landnám ríkisins hafi ekki verið ýkja dýrt í rekstri. En hvað um það. Það er sjálfsagt að leita leiða til þess að spara í rekstrinum. En það er eitt sem ekki hefur verið gert að umtalsefni sem kemur fram í aths. með þessu lagafrv. Það er að Landnám ríkisins hefur haft á höndum stjórnsýslu graskögglaverksmiðja í landinu. Því er heitið í bak og fyrir í þessu frv. að því muni fylgja frv. um hvernig stjórnarfyrirkomulag verði að því er þessar fóðurverksmiðjur varðar. Það segir beinlínis í aths. með 14. gr. að samhliða þessu frv. verði flutt frv. um fóðurverksmiðjur. Þetta frv. hefur ekki sést hér á borðum okkar. Hins vegar er það tekið fram í 13. gr. að landbrn. skuli við gildistöku þessara laga taka við verkefnum Landnáms ríkisins og landnámsstjórnar nema annað sé ákveðið með lögunum. Sú spurning hlýtur þá að vakna: Er þá eftir samþykkt þessara laga komin sú staða að það sé landbrh. og landbrn. sem standi í þessum atvinnurekstri, að það sé hugmyndin að landbrn. og landbrh. fari beint með graskögglaverksmiðjurnar og fari með rekstur þeirra? Það verður ekki annað séð en að framgangur þessa frv. með þeim hætti sem hér er gert ráð fyrir, nefnilega þeim að láta það frv. ekki fylgja um rekstur grænfóðurverksmiðjanna sem ætlast er til að fylgi, geti haft einmitt þessar afleiðingar í för með sér.

Ég vildi vekja athygli deildarinnar á þessum þætti málsins líka vegna þess að það hefur ekki verið talin skynsamleg stefnumörkun að rn. stæðu í atvinnurekstri. Nú kann að vera að einhver finnur áform séu uppi í þessum efnum ellegar þá að þetta sé falið með einhverjum öðrum hætti annars staðar í þessu margslungna kerfi okkar. En mér sýnist að eins og þetta lagafrv. liggur fyrir hafi það ekki verið efni sem ætlast var til í upphafi, bæði af Ríkisendurskoðun þegar hún gekk frá sínu áliti varðandi þetta mál og eins þegar gengið var frá frv. í hendurnar á þinginu, að setja fóðurverksmiðjunum sérstaka stjórn.

En allt þetta frv. eins og það liggur fyrir gefur náttúrlega tilefni til þess að menn hyggi að því hvernig menn hafa komið fyrir skipulagsmálum að því leyti sem hér er rakið og hefur verið gert svo ítarlega að umtalsefni og sem hv. þm. Bjarni Guðnason vakti sérstaka athygli á. Ég held að það sé alveg augljóst að menn séu hér með allt of flókið og viðamikið kerfi þar sem hver silkihúfan er upp af annarri. Ég óttast að bændur séu að fjötra sig og í rauninni að svipta sig átthagafrelsi sínu, að það geti gerst fyrir tilstilli þessara laga að eigur þeirra verði næstum því að engu, þeir geti ekki fengið að selja þær með eðlilegum hætti þegar starfsþreki lýkur eða þegar þeir af öðrum ástæðum vilja hætta búskap. Það er náttúrlega býsna alvarlegt ef lög eru svo flókin og þvingandi að eigur manna séu gerðar verðlausar fyrir það að ekki sé hægt að koma fram t. d. eðlilegri sölu á eign, eðlilegri sölu á bújörð, eins og menn hljóta að óttast þegar þeir lesa um það fjölþætta kerfi sem hér er sett upp til eftirlits rn., umsagnar, afgreiðslu og stimplunar, eins og svo ítarlega hefur verið rakið.

Ég held að í stað þess að samþykkja þetta frv. væri langtum nær að vinda sér að því að einfalda þetta stjórnkerfi allt saman og auka frelsi bændanna að því er varðar umráðarétt yfir eignum sínum og að gera umgengnina við landið auðveldari að þessu leyti og ég vil segja framþróun í landbúnaði líka auðveldari og koma að mörgu leyti til móts við hagsmuni bænda sem ég óttast að hér séu fyrir borð bornir.

En að síðustu hlýt ég að spyrja: Hvernig er þetta með grænfóðurverksmiðjurnar og það stjórnarfyrirkomulag sem lofað er í frv., að fylgi annað frv. með til þess að leysa úr — eða er hugmyndin að landbrh. gerist nú rekstrarstjóri allra grænfóðurverksmiðja í landinu?