21.05.1984
Neðri deild: 102. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6497 í B-deild Alþingistíðinda. (6010)

306. mál, skattskylda innlánsstofnana

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég skal nú reyna að hleypa ekki fundinum upp á ný, en ég vil aðeins svara hér nokkru af því sem fram hefur komið og þá fyrst frá virðulegum 3. þm. Reykv.

Bréf það sem ég skrifaði dr. Gunnari Thoroddsen á sínum tíma var ekki stílað til Hvíta hússins eða forseta Íslands, eins og hann gat um, heldur til þingflokks sjálfstæðismanna og afrif fór til þáv. formanns flokksins, Geirs Hallgrímssonar, og varaformanns, Gunnars Thoroddsens. Ég vil líka leiðrétta það að ég hafi hellt mér hér yfir Ragnar Arnalds úr ræðustól og af minni hálfu væri það óheiðarlegt þar sem hann gæti ekki borið hönd fyrir höfuð sér í þessari deild. Ég vil til að skrá það einu sinni enn í þingtíðindi lesa upp úr ræðu Ragnars Arnalds, hv. 3. þm. Norðurt. v., sem hann hélt þegar hann var fjmrh. um skattlagningu á banka. Það hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Í ákvæði til bráðabirgða V er gerð till. um að dregið sé nokkuð úr þeirri gjaldtöku sem tíðkast hefur hjá gjaldeyrisbönkunum skv. lögum nr. 40 frá 1969, en það er gjald vegna tekna þessara tveggja gjaldeyrisbanka af umboðsþóknun og gengismun. Lagt er til að gjaldið lækki úr 60% í 50% á þessu ári og í 40% á næsta ári.“

Ég sé ekki ástæðu til að lesa frekar. Ég kallaði það svik að í staðinn fyrir að halda áfram að lækka þetta gjald var það aftur hækkað í 60%. Þetta hafði ég líka sagt í Ed. þar sem virðulegur 3. þm. Norðurl. v. svaraði því og við áttum um það orðaskipti.

Ég vil líka leiðrétta þann misskilning, sem fram hefur komið, að hér er ekki verið að borga nokkurn skapaðan hlut úr ríkissjóði. Þegar þetta gjald á innlánsstofnanir var sett á átti það að koma í staðinn fyrir þann gjaldeyrisskatt sem hvíldi á tveimur gjaldeyrisbönkum. Þess vegna átti gjaldeyrisálagið að lækka smátt og smátt og hverfa um leið og skatturinn á innlánsstofnanir almennt tæki við, þannig að það fé sem innheimtist af gjaldeyrisskattinum innheimtist í staðinn af öllum innlánsstofnunum.

Það er alveg rétt hjá virðulegum 3. þm. Reykv. að það er áhyggjuefni ef þjóðbankarnir líða í almenningsáliti um viða veröld. Það er líka áhyggjuefni að sjálfsögðu og ekki síður að ríkissjóður líður fyrir slæma stöðu í almenningsálitinu um víða veröld. En það vill nú svo til að þeir sem við okkur hafa peningaleg samskipti vita nákvæmlega um uppbyggingu á bankakerfinu. Þeir vita að ríkissjóður er ábyrgur fyrir ríkisbönkunum þannig að þeir líta á þetta sem eina heild, svo að það er jafnvont út á við að ríkisbankarnir standi illa eins og að ríkissjóður standi illa.

Ég vil taka undir með hv. 3. þm. Reykv. hvað snertir bréf verðlagsstjóra til Seðlabankans um samræmda gjaldtöku, að hún sé óheimil. Ég vil ganga lengra. Það er ekkert nýtt frá mér. Ég vil ganga lengra og segja að samband viðskiptabankanna sem slíkt á enga stoð í lögum. Þar hafa bankastjórar þjóðbankanna komið sér saman um að stofna með sér samband, sem er orðið einhvers konar yfirbankaráð, vill taka ákvarðanir. Þetta hefur náð yfir alla ríkisbankana. Þetta er ekki lögum skv., vegna þess að það stendur í lögum um ríkisbankana að hver og einn skuli starfa sem sjálfstæð stofnun. Það er þetta út af fyrir sig sem ég er reiðubúinn til þess að taka undir.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara út í frekari orðaskipti. Ég man ekki hvort ég hef skrifað niður neina sérstaka spurningu til mín.

Ég vil þá reyna að svara nokkrum orðum hv. 5. þm. Austurl. Hann vitnaði hér í sinni ræðu í ræðu mína frá 14. eða 15. þ. m. vegna tollkrítar. Ég vil bara undirstrika það og óska eftir því að hann kynni sér gang þessara mála. Ég get líka sagt að því miður var það ekki fyrr en á sameiginlegum fundi með Magnúsi Kjartanssyni, þegar hann var iðnrh. og Halldóri E. Sigurðssyni fjmrh. sem tollvörugeymslan fékk í fyrsta skipti undirtektir í þessum tveimur málum. En því miður varð þá ekkert úr framkvæmdum af öðrum ástæðum.

Peningum bankanna verði varið til skynsamlegri verkefna, t. d. dagvistunarheimila. Ég vil meina að peningum bankanna sé yfirleitt varið skynsamlega, þó að að sjálfsögðu sé hægt að finna þess dæmi að svo sé ekki og menn verði aldrei sammála um hvað er skynsamlegast að gera við peningana. En peningar bankanna eins og peningar eru í þjóðfélaginu eru vinnutæki þjóðarinnar. Þeir verða að gefa af sér það sem þeir eiga að skilja eftir í þjóðfélaginu í fasteignum og í rekstri. Sú velta sem bankarnir skapa og þau verðmæti sem peningaveltan, peningarnir skapa, verða að gefa af sér dagheimili og margt annað. Ég vildi helst ekki fara að éta útsæðið í þessu tilfelli eins og virðist vera uppi hjá hv. 5. þm. Austurl.

Þá vil ég upplýsa að fjárlaga- og hagsýslustofnun hefur ekki gert þá úttekt sem hann spurði um hér áðan. Hún var gerð af Bankaeftirlitinu.

Þá spurði hv. þm. um húshitunarkostnaðinn og hefði ég heldur viljað að hann beindi þeim spurningum til hæstv. iðnrh. En það er rétt að þar sem áður stóð 35 millj. í fjári. 1983 var það hækkað upp í 150 millj. Reglugerð hefur ekki verið sett. Hún átti að setjast, ef ég man rétt, af fjmrh. og iðnrh. Af þessari upphæð voru notaðar 70 millj. kr. Eftir stóðu 80 millj. 20 millj. verða notaðar í þessum tilgangi í ár, en 60 millj. fara hugsanlega í þann sparnað sem iðnrn. mun taka á sínar herðar í sambandi við fjárhagsvandann. Það er því rétt að upphæðin var ekki öll nýtt.

Það er nú ekki alveg rétt sem kom fram hjá hv. 5. þm. Reykv. að fjmrh. sé sérstakur varðhundur á iðnrh. Fjmrn. verður að hafa eftirlit með framkvæmd fjárlaga og á það við um öll rn. En fjvn. er aftur á móti eftirlitsaðili á fjmrh. og ég hef haft mjög gott og náið samband og samstarf við fjvn.

Það er líka rétt sem fram kom hjá hv. þm. að endurkaupalán hafa verið lækkuð um 5% í áföngum. Það nær ekki til eldri birgða, það er af nýjum birgðum. En bindiskyldan verður að sjálfsögðu ekki aukin, eins og fram kemur í 25. gr. bandormsins, nema með samþykki ríkisstj. og það er að höfðu samráði við stuðningsflokka ríkisstj. Ég var líka spurður af hv. 5. þm. Austurl. hvernig viðskiptabankarnir mundu hugsanlega bregðast við þessari ákvörðun. Forsrh. hefur svarað spurningunni um vaxtahækkun. Hann hefur sagt að ekki komi til greina vaxtahækkun. En ég held að það sé alveg ljóst að það atriði sem snertir bindiskyldu bankanna verður að endurskoðast af ríkisstj. Það er alveg ljóst að ef á að færa endurkaup frá seðlabankanum yfir á viðskiptabankana, þá verður að minnka bindiskyldu bankanna við Seðlabankann, það segir sig sjálft. Annars er ég þeirrar skoðunar — ég vil segja það hér — að það eigi að loka Seðlabankanum fyrir viðskiptabönkunum nema þá í hreinni neyð. Og á sama tíma á að mínu mati að fella niður bindiskyldu bankanna með öllu, en skylda allar innlánsstofnanir til að taka þátt í endurkaupum afurðalána. Ég held að það verði farsælla, því að bindiskylda á viðskiptabankana var sett á til að standa undir endurkaupum og það er hægt að gera það á miklu skemmtilegri og betri hátt en þann að peningum sé safnað saman í Seðlabanka og Seðlabankinn endurláni svo viðskiptabönkunum með okurvöxtum. Þetta tel ég bráðnauðsynlegt til þess að hægt sé að hafa hér eðlileg viðskipti milli banka og þeirra sem skapa verðmætin í þjóðfélaginu.

Ég held að ég hafi þá lokið við þær spurningar, sem til mín var beint og lýk máli mínu.