21.05.1984
Neðri deild: 102. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6514 í B-deild Alþingistíðinda. (6027)
221. mál, jarðalög
Frsm. (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Til þess að greiða fyrir því að koma jarðalögunum áfram hefur um það orðið samkomulag að flytja hér brtt. Hún er of seint fram borin. Ég verð því að óska eftir að það verði leitað afbrigða þannig að hún geti komið hér til umr. og afgreiðslu. En þessi till. hljóðar þannig:
„Við 3. gr. Síðari málsl. 4. mgr. orðist þannig: Ákvæði þessarar greinar taka einnig til veiðihúsa“.
Út úr þessari grein eru þá tekin sæluhús og skíðaskálar.
Eins og kom fram í máli mínu fyrr í kvöld var þetta frv. rætt töluvert mikið í landbn. En við nm. fengum það ekki fyrr en s. l. miðvikudagskvöld um tólfleytið. Okkur var ljóst að það yrði að taka málið upp strax í haust vegna þess að það hefði ekki farið til jarðanefndar eða til umsagnar hjá búnaðarsamböndum. Þar sem er komin nokkur reynsla á jarðalögin, sem voru frumsmíði fyrir nokkuð mörgum árum, þarf að breyta þeim á ýmsan hátt. Hæstv. landbrh. tók það fram í ræðu sinni hér í kvöld að hann mundi beita sér fyrir því að jarðalögin yrðu endurskoðuð á næsta hausti.
Ég vona að þessi till. verði til þess að greiða fyrir því að málið nái fram að ganga.