21.05.1984
Neðri deild: 103. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6520 í B-deild Alþingistíðinda. (6053)

252. mál, fjarskipti

Frsm. meiri hl. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Samgn. fékk þetta mál til umfjöllunar um hádegi s. l. laugardag og hefur því haft skamman tíma til að skoða það því að á sama tíma fékk hún önnur tvö frv. sem munu verða rædd hér á eftir.

Þetta frv. er komið frá Ed. og tók þar nokkrum breytingum. Það bárust margar umsagnir um málið. Umsagnirnar voru sendar póst- og símamálastjóra til athugunar og hann lagði til að gera þrjár breytingar á frv. í Ed.

Það má segja að samkomulag sé um frv., við höfum ekki orðið varir við annað, en það var mikið spurt um það hvort kapalkerfi mundi heyra undir þessa löggjöf ef þetta frv. verður að lögum. Hér segir á bls. 7 í grg. að kapalkerfi heyri ekki undir þessa löggjöf og geta menn flett þessu upp ef þeir vilja. Sú breyting er gerð á frv. að ráðh. hafi heimild til að gefa einstökum mönnum, félögum og stofnunum leyfi til að stofna og reka fjarskiptavirki, þó ekki í atvinnuskyni, það eigi alls ekki við kapalkerfi. Það á við um boð bæði frá og að, þ. e. í gagnstæða átt.

Ég vil taka þetta fram vegna þess að það hafa komið spurningar um þetta og menn eru á varðbergi gagnvart þessu nokkuð mikið.

Á þskj. 1067 kemur fram að meiri hl. n. hefur rætt málið á nokkrum fundum og meiri hl. mælir með samþykkt þess eins og það kemur frá Ed.

Kristín Halldórsdóttir tekur ekki afstöðu til málsins og er það einvörðungu vegna þess að ekki gafst að hennar dómi nægur tími til að athuga það. Hv. þm. Stefán Guðmundsson var fjarstaddur.