22.05.1984
Efri deild: 112. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6550 í B-deild Alþingistíðinda. (6110)
301. mál, atvinnuréttindi skipstjórnarmanna
Frsm. 1. minni hl. (Valdimar Indriðason):
Virðulegi forseti. Hér er um breytingar að ræða sem voru gerðar í Nd. og ég vildi óska eftir því fyrir hönd n. að hún fengi þessu máli örlítið frestað, að við fengjum smátíma til að fara aðeins yfir þessar breytingar áður en við tökum þær til umr. — [Fundarhlé.]
Virðulegi forseti. Samgn. Ed. hélt hér fund í hliðarherbergi um þetta frv. eins og það kemur breytt frá Nd. Ég ætla ekki að fara þar mörgum orðum um. En það eru skiptar skoðanir í nefndinni eins og lá fyrir þegar þetta frv. var lagt hér fyrir hv. deild. Meiri hl. n. leggur til að samþykktar verði þær breytingar sem koma frá Nd. en minni hl. — ég segi ekki að hann leggist neitt á móti því en er ekki sammála því. Hann vill láta ganga lengra í þessum málum, að þau fái frekari skoðun, ég held að það sé rétt orðað á þann veg. En þessi breyting, sem hér er gerð eftir samkomulagi við samgrh. í Nd. í nótt og hann hefur kynnt forseta Farmannasambandsins og svo varðandi hitt frv. formanni Vélstjórafélagsins, varð til þess að þeir una þessu eftir atvikum ef svo má segja. Það er gert ráð fyrir frestun á framkvæmd þessa upphaflega frv. að því er varðar gildistöku ýmissa ákvæða, þannig að tími gefist til að fjalla ítarlega um málið með þeim aðilum sem það snertir. Ég fel þessar breytingar til bóta og vonast til að um þetta mál náist full sátt þegar öldurnar ná að lækka sem um það hafa risið nú undanfarna daga.
Meiri hl. n. leggur til að frv. verði samþykkt með áorðnum breytingum frá Nd.