22.05.1984
Efri deild: 112. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6552 í B-deild Alþingistíðinda. (6113)

221. mál, jarðalög

Frsm. (Egill Jónsson):

Virðulegi forseti. Eins og hér liggur fyrir hafa verið gerðar smávægilegar breytingar í Nd. á frv. til l. um breytingu á jarðalögum. Ég hef haft samband við suma af landbn.-mönnum, ekki alla, um þessar breytingar, sem ég tel mér vera óhætt að fallast á fyrir hönd nefndarinnar og mæla með samþykkt þeirra. En þær eru varðandi 10. gr. frv. og fela það í sér að ákvörðun um staðsetningu og byggingu sæluhúsa og skíðaskála þurfi ekki að leggja fyrir jarðanefnd.

Ég mæli þess vegna með því, virðulegi forseti, að málið verði samþykkt eins og það kemur frá Nd.