22.05.1984
Efri deild: 113. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6554 í B-deild Alþingistíðinda. (6124)

40. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Ragnar Arnalds:

Virðulegi forseti. Þessi orð hins ágæta hv. þm. Stefáns Benediktssonar eru á nokkrum misskilningi byggð. Það er margföld og löng venja fyrir því hér í þinginu að ef óskað er eftir því að atkvgr. sé endurtekin strax eftir að hún hefur farið fram vegna einhvers vafa sem um hana leikur er það ávallt gert og aldrei horft í það þó að atkvgr. hafi farið fram, en það verður að gera það strax eftir að atkvgr. hefur farið fram. Hins vegar er ekki hægt að endurtaka atkvgr. eftir að forseti hefur lýst því yfir að málið sé afgreitt frá deild og sé t. d. orðið að lögum. Þá er málið endanlega frá gengið. Þannig stóð á í Nd. (StB: Forseti er búinn að lýsa yfir að frv. sé fellt.) Í Nd. stóð þannig á að búið var að afgreiða málið. Það var búið að lýsa því yfir að málið hefði verið afgreitt frá deildinni. Það lék ekki vafi á atkvgr. sem slíkri, heldur var einfaldlega óskað eftir því að málið væri brotið upp, sent til n. o. s. frv. Ég segi þetta vegna þess að mér fannst að það kæmi nokkur ókunnugleiki fram í orðum hv. þm. Það er mjög gömul og margföld venja fyrir því að strax í kjölfar atkvgr. er orðið við því, ef þess er óskað, að hún sé endurtekin. Ég er ekkert viss um að niðurstaðan breytist neitt, en menn vilja stundum hafa þetta atveg á hreinu, t. d. með því að óska eftir nafnakalli við atkvgr.