14.11.1983
Efri deild: 14. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 774 í B-deild Alþingistíðinda. (614)
67. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Virðulegi forseti. Þetta mál er einfalt í sniðum. Efnisgreinin fjallar einungis um það að breyta 36. gr. l. um Framleiðsluráð landbúnaðarins og fella þar niður heimild framleiðsluráðsins til þess að löggilda Samband eggjaframleiðenda. Ég ætla ekki að hefja hér neinar miklar umr. um þetta mál því verður vísað til n. sem ég væntanlega á sæti í og sjálfsagt að það fái þar skoðun. Það hafa borist hér á borð þm. ýmiss konar plögg önnur sem rétt er að skoða í rólegheitum og til þess að spara tímann þá vil ég lesa hér upp örstutta grg., með leyfi forseta:
„Nýlega hafa borist af því fregnir að hugmyndir séu uppi um að nota heimild 36. gr. framleiðsluráðslaganna nr. 95/1981 til að veita Sambandi eggjaframleiðenda einkarétt til sölu og dreifingar eggja gegn andstöðu helstu eggjaframleiðenda. Þar sem flm. telja að slíkur háttur á sölu þessarar vöru brjóti í bága við hagsmuni neytenda og hamli eðlilegum framförum í framleiðslu landbúnaðarvara álíta þeir nauðsynlegt að numin sé úr lögum heimild til slíkrar einokunarstarfsemi. Auk þess verður hún að teljast í andstöðu við þær meginreglur um atvinnufrelsi sem hafa ber í heiðri.
Í samræmi við framangreind sjónarmið er lagt til að úr texta 36. gr. framleiðsluráðslaganna falli heimild ráðsins til að veita Sambandi eggjaframleiðenda einkarétt til sölu og dreifingar á eggjum til smásöluverslana.“
Eins og ég sagði er þetta auðskilið mál og okkur fannst, flm., að einfaldast væri að flytja það í þessu formi, að breyta einungis þessari einu grein framleiðsluráðslaganna en málið fær vafalaust góða og ítarlega umfjöllun í hv. landbn. en ég legg til að því verði að lokinni þessari umr. vísað til hennar.