22.05.1984
Neðri deild: 107. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6561 í B-deild Alþingistíðinda. (6148)
332. mál, Búnaðarbanki Íslands
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Ég mun ekki hafa hér langt mál. En ég kemst ekki hjá því að segja nokkur orð eins og ég tilkynnti þeim hæstv. forseta sem var hér í forsetastóli kl. að ganga sex í morgun. Það hefur verið unnið að þessu máli með nokkuð einkennilegum hætti. Skipuð hefur verið nefnd til að athuga og gera heildarlöggjöf um bankana. Ég hef ekki séð hennar álit. Ég hef reynt að spyrja hvað í því fælist en lítil svör fengið.
Síðan er tekið þetta eina út úr og skrifuð grg. með þessu frv. sem bæði hv. síðasti ræðumaður og ég höfum farið nokkrum orðum um og sýnt fram á það að þessi grg. standist ekki staðreyndir í þessu máli. Ég hef spurt um það, þar sem formaður bankamálanefndar á sæti í fjh.- og viðskn., hvað hefði verið rannsakað í þessu máli, t. d. í sambandi við rekstrarafkomu bankanna. Ég fékk náttúrlega engin svör. Það var óskað eftir því að frv. yrði sent til umsagnar Stéttarsambandinu, Búnaðarfélaginu, stjórn Stofnlánadeildar. Þessu var ekki sinnt. Hverjir eru það sem eru í þessari nefnd? Það er fróðlegt að athuga það, vegna þess að talið er sjálfsagt að gera þessa breytingu án þess að spyrja þá aðila sem þetta kemur mest við, þ. e. landbúnaðinn og þær stofnanir sem honum tilheyra.
Formaðurinn er hv. þm. Páll Pétursson, en aðrir í nefndinni eru m. a. formaður Alþb., Svavar Gestsson, formaður Sjálfstfl. Þorsteinn Pálsson, og formaður Alþfl., Kjartan Jóhannsson. Það var ekki talin ástæða til af þessari nefnd að verða við þessari sjálfsögðu beiðni, heldur var tekið til þeirra ráða að kalla nokkra menn úr þessum stofnunum til fundar með engum fyrirvara í rúmar 20 mínútur. Það er kannske hægt að segja að þetta sýni að nú er komið svo í Alþingi Íslendinga að það þarf ekki að spyrja bændur.
Án þess að ég telji að þetta sé nokkur vendipunktur í þessum málum hér á Alþingi Íslendinga rifjaði ég það upp í nótt hvernig staðið hefði verið að því þegar Búnaðarbankinn var stofnaður og hvern hug þm. höfðu þá til þessa máls. Eins og þar kom fram er það talið einstakt að stjórnarandstaðan skyldi þakka sérstaklega fyrir það að þetta frv. væri þá flutt. Eftir atkvgr. áðan að dæma má ætla að menn séu hér á nokkuð annarri skoðun. Og auðvitað fer það ekkert á milli mála, ekki síst miðað við þá stöðu sem er úti á landsbyggðinni, að þetta verður í fyrsta lagi til þess að menn hafa minni trú eftir en áður á möguleikunum til að byggja þar upp atvinnurekstur og gera þá framleiðslubreytingu sem landsbyggðinni er nauðsynleg. Ég harma það tillitsleysi sem hér kemur fram, að taka þetta mál án þess að skoða það í heild, án þess að athuga hvaða áhrif það hefur og hvernig verður gengið frá öðrum málum í sambandi við þetta og áður en nokkur niðurstaða fáist í sjálfu sér um það hvernig verður haldið á bankamálunum yfirleitt. Ég harma að hv. alþm. skuli taka þannig á þessu máli.