22.05.1984
Sameinað þing: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 6581 í B-deild Alþingistíðinda. (6187)

Skýrsla forsætisráðherra um Framkvæmdastofnun ríkisins

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég kveð mér hljóðs til að þakka hæstv. sjútvrh. fyrir þau svör sem hann hefur gefið.

Það er í fyrsta lagi ljóst að það er ágreiningur í ríkisstj. um hvernig á að halda áfram endurskoðun á lögum um Framkvæmdastofnun ríkisins. Nefnd hefur skilað áliti, sagði hæstv. ráðh., og ákvörðun um framhald hefur ekki verið tekin. Það er sem sagt verið að togast á um það núna milli stjórnarflokkanna hvernig framhaldið verður á þessu verki þessarar nefndar sem átti að endurskoða Framkvæmdastofnunina og sjóðakerfið. Þar er ágreiningur í þessu efni eins og í mörgum öðrum málum sem við höfum kynnst síðustu dagana úr stjórnarsamstarfinu. Það væri hins vegar ástæða til að fara fram á það við hæstv. sjútvrh. að hann hlutist til um að alþm. fái sent það nál, sem hér um ræðir þannig að þm. geti kynnt sér það hvaða ágreiningur er hér uppi og hvaða tillögur liggja þegar frammi.

Þá kom ég að því sem hæstv. ráðh. sagði um endurskoðun á lögum um Stjórnarráð Íslands. Hann taldi að hugmyndir um breytingu á stöðu Ríkisendurskoðunar og rekstrareftirlit opinberra fyrirtækja tengdist allt því máli. Kann vel að vera að menn endi með því að tengja þetta allt saman. Ég vil láta það koma fram hér sem mína skoðun að ég tel að endurskoðun á lögum um Stjórnarráð Íslands sé eitt stærsta nauðsynjamál varðandi stjórnkerfisbreytingar í landinu. Ég held að það væri mjög þarft ef hægt væri að vinna þannig að þeim málum að tillögur um endurskoðun lægju fyrir snemma á næsta þingi. Ég tel að það sé varla hægt að gera sér hugmyndir um að breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands komi til framkvæmda nema við stjórnarskipti og það er nauðsynlegt að halda þannig á málum að niðurstaða af endurskoðun þessari liggi fyrir vel í tæka tíð fyrir næstu alþingiskosningar, hvenær svo sem þær verða.

Ég lít í rauninni sömu augum á þetta mál og endurskoðun á lögum um þingsköp Alþingis. Ég tel að það sé mjög brýnt að endurskoða þau lög og alla starfshætti Alþingis og tel að ef það tækist að tengja endurskoðun á þessu tvennu saman með skikkanlegum hætti væri verulegum áfanga náð því að ég tel að hvort tveggja sé að störf Alþingis megi bæta mjög og Stjórnarráðs Íslands ekki síður.

Ég vil svo að lokum segja það, herra forseti, að sú umræða sem hér hefur farið fram um Framkvæmdastofnun ríkisins segir út af fyrir sig kannske ekki ýkjamargt. En það er rétt að undirstrika það að síðustu að lausnin á vanda hinna dreifðu byggða ílandinu getur ekki falist í því að taka upp einhliða markaðshyggju á öllum sviðum. Þeir sem leggja áherslu á markaðshyggju eru að stefna fólki og fjármagni í landinu öllu á einn og sama staðinn. Þess vegna er ljóst að lausn á vanda hinna dreifðu byggða í landinu fæst einungis á félagslegum grundvelli. Þess vegna er núv. ríkisstj. á villigötum í byggðamálum.