14.11.1983
Efri deild: 14. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 784 í B-deild Alþingistíðinda. (624)

88. mál, starfsmannaráðningar ríkisins

Ólafur Jóhannesson:

Virðulegi forseti. Ég skal ekki tala langt mál um þetta á þessu stigi og ég er ekki reiðubúinn til þess nú að taka afstöðu til þessa máls en tel sjálfsagt að það verði athugað mjög gaumgæfilega og fái ítarlega athugun í n. Það er augljóst að mínu mati að því fylgja vissir kostir að tímabinda skipun eða ráðningu í störf. En á hinn bóginn þýðir ekki að loka augunum fyrir því að ókostir geta líka fylgt því. Og ég held að í því sambandi verði e.t.v. eitthvað að líta á eðli þess starfs sem um er að tefla. Ég fyrir mitt leyti fel það mjög eðlilegt — og ég býst við að flestir séu nú á því máli — að forstöðumenn atvinnufyrirtækja séu ráðnir eða skipaðir til ákveðins tíma. Aftur á móti er það kannske ekki alveg glöggt hér í frv. og kom kannske ekki heldur alveg ljóst fram í máli frsm. við hvað er átt með ríkisstofnun. Það getur átt við líka um ríkisstofnanir margar hverjar, að mínu mati, að menn séu skipaðir þar tímabundið. En þá nota ég ríkisstofnanir í ákveðinni merkingu og geri þá greinarmun á embættum og svo ríkisstofnun, og ég held að það sé venjulegt að gera það. En mér finnst ekki vera alveg ljóst við hvað er átt að þessu leyti til. Þó kom það fram hjá hv. flm. að hann gerir ráð fyrir að sjálfsögðu að tekið verði fullt tillit til stjórnarskrárinnar í þessu efni og hún fjallar einmitt um vissa tiltekna embættismenn.

En því segi ég þetta að mér finnst það dálítið skoplegt þegar í 3. málsgr. 3. gr. er farið að undanskilja biskup og presta þjóðkirkjunnar í þessu sambandi, þar sem áður er búið að tala um forstöðumenn atvinnufyrirtækja og ríkisstofnana. Mér hefði a.m.k. ekki dottið í hug að biskup og prestar féllu undir þetta. Ja, hvað er ríkisstofnun? Er átt við að söfnuður og kirkja sé ríkisstofnun? Má þá ekki eins tala um lækna og sýslumenn? Sýslur voru einu sinni reknar af sýslumönnum með vissum hætti. Það er nú ekki lengur. En þetta þarf að athugast í n. og þarf að liggja ljóst fyrir hvað menn meina í þessu efni.

Ég hef ekki mikið á móti ráðherrum yfirleitt, en kannske er það í fullmikið ráðist að fela ráðh. það vald sem honum er veitt þarna í 3. gr. Það gæti verið að ráðh. yrði tortryggður í sambandi við það hverjar ríkisstofnanir hann velur þegar hann ákveður hvort ráðinn skuti tímabundinn forstjóri fyrir þær eða ekki. Ég held að æskilegt væri, ef þessi skipan væri upp tekin, að það væru skýrari reglur og alveg ótvíræðar um það hverjir falla þar undir. En best væri fyrir alla aðila að það væri lagt sem minnst í vald ráðh.

En það er eins með þetta atriði og önnur sem ég minntist á að þetta þarf vitaskuld að athuga í n. og velta því fyrir sér.

Upphaf 5. gr. hljóðar dálítið ankannalega að mér finnst, fljótt á litið, en það kann að vera misskilningur. Þar segir með leyfi forseta: „Setja má mann í þau embætti sem jafnan skal skipa í.“ Ef ég skil þetta rétt er orðatagið „að jafnaði“ líklegra eða trúlega meint.

Ástæðan til þess að ég stóð upp var m.a. sú, að hv. flm. vísaði til samþykktar sem gerð hefði verið í fyrrv. ríkisstj. um þetta efni í ágústmánuði s.l. Ég vil aðeins taka það fram að ég hafði þá fyrirvara um þetta atriði og ég hef það að vissu leyti enn. Ég held að þetta sé talsvert flókið mál allt og þurfi að skoða það frá nokkuð mörgum hliðum. En mér skilst að hér sé byggt á þeirri skiptingu sem er í lögunum um réttindi og skyldur. Samkv. þeim lögum falla utan við þau lög t.d. allir bankastarfsmenn, peningastofnanir. Ég verð að segja það að ef á að taka upp tímabundna skipun eða ráðningu þá finnst mér eðlilegt að þar yrðu efstir á lista bankastjórar og forstöðumenn peningastofnana. Þetta þarf m.a. að athuga.

Eins og ég sagði, virðulegi forseti, ætla ég ekki á þessu stigi að tala langt mál um þetta. Og mínar athugasemdir eða öllu heldur kannske ábendingar má ekki taka svo að ég sé að meginstefnu til að andmæla þessu frv. og þeirri hugsun sem í því felst, því ég held að það geti í ýmsum tilfellum verið heilbrigt að taka upp nýja skipan í þessu efni. En menn mega ekki gera þetta mál of einfalt fyrir sér. Það er talsvert flókið og þarf að athugast vel og það veit ég að sú n. gerir sem fær frv. til meðferðar. E.t.v. er betra í þessu efni að flýta sér hægt og að málið fái betri athugun utan þings.

Það er ekki siður hér að gera miklar athugasemdir við það til hvaða n. mál fer, en mér finnst ákaflega einkennilegt, ég get ekki neitað því, ef þetta mál á að fara til félmn. Félagsmál held ég að þetta geti seint orðið. Samkv. tískunni hefði manni kannske dottið í hug að því yrði vísað til fjh.- og viðskn., en ég hefði talið eðlilegast að það færi til allshn.