14.11.1983
Efri deild: 14. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 792 í B-deild Alþingistíðinda. (632)

88. mál, starfsmannaráðningar ríkisins

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég sé ekki af þeim kynnum mínum sem ég hef af opinberum rekstri neina hindrun í að skipta um þar sem menn annaðhvort standa sig ekki í embættum eða brjóta af sér, þannig að sá steinrunni sem hv. þm. talaði um er þá í forustunni sjálfri, hann er þá í mér sem ráðh. eða honum sem fyrrv. hæstv. ráðh.