14.11.1983
Neðri deild: 13. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 806 í B-deild Alþingistíðinda. (642)

Umræður utan dagskrár

Utanrrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Athygli mín var á því vakin í dag, eftir að sjónvarpsfréttin birtist á skjánum í gærkvöld, að fyrir rúmri viku hefði birst í Morgunblaðinu frásögn um þann möguleika að sovésk landgöngusveit hefði hoggið á kapal á Íslandi. Nánar tiltekið birtist þetta í frétt í Morgunblaðinu fimmtudaginn 3. nóv. 1983. Ég verð að játa það, jafnvel og ég les Morgunblaðið venjulega að þessi frétt hafði farið fram hjá mér vegna mikils annríkis þá dagana sem hún birtist, Athygli mín var sem sagt ekki vakin á þessari frétt fyrr en nú í dag. En í þessari frétt er vitnað í bandarískt tímarit, Science Digest, sem birtir grein eftir tilgreindan mann, þar sem talað er um að það hafi verið hoggið á kapal á Íslandi, sem hafi verið til þess að fylgjast með ferðum kafbáta umhverfis Ísland, og lægi sovésk landgöngusveit undir grun í þessu efni. greininni kemur einnig fram, „að 1980 hafi djúpsigldur og hraðskreiður sovéskur kafbátur af Alfa-gerð getað komist „óséður“ í gegnum SOSLIS-kerfið á milli Grænlands og Íslands.“

Nú skyldi maður ætla að menn hefðu tekið eftir slíkri frétt sem þessari engu síður en sjónvarpsfréttinni í gær. En sannleikurinn er sá að þessar fréttir eru svo margar, svo fjöldamargar að það verður ekki fylgst með þeim öllum. Og það ber heldur engum að taka þessar fréttir allar alvarlega. Þær eru þúsundir talsins og það mundi æra óstöðugan að fylgjast með þeim öllum. En hitt tel ég almennt séð, og ítreka og endurtek þau ummæli mín í fyrri ræðu, að við Íslendingar eigum að fylgjast almennt betur með þessum málum, þ. á m. fréttaflutningi er okkur snertir.

Nú er það svo að ég hef ekki haft tíma til að lesa þá skýrslu sem sjónvarpið lét mér í té. En ég hlýt að vekja athygli á því að þar er ekki eingöngu eða aðallega rætt um Ísland, heldur er talað um Tyrkland, Japan, Danmörku, Eystrasalt og Vestur-Þýskaland, Ísland og Bretland, Noreg, Kóreu, Sikiley, Alaska, Fihpseyjar, Taiwan o. s.frv., o.s.frv. Hér er engan veginn um tæmandi upptalningu að ræða. Þetta er atmennt yfirlit að því er ég fæ séð með því að fletta þessari skýrslu. Og ég legg ekki mikið upp úr þessari skýrslu, eða réttara sagt, ég legg ekki neitt upp úr þessari skýrslu. En jafnvel það sem okkur finnst fjarlægt verðum við þó að hafa í huga og fylgjast með, vegna þess að inn á milli kann að leynast eitthvað það sem okkur skiptir miklu máli. Og í þeim anda ber okkur auðvitað að starfa.

Það væri út af fyrir sig fróðlegt að fjalla nokkuð um málflutning hv. alþm. hér í dag. En ég vænti þess að tækifæri gefist til þess næstu daga þegar till. til þál. um afvopnunarmál koma hér til umr. svo og í fsp.-tíma á morgun varðandi ratsjárstöðvarnar.

Ég hef ítrekað, bæði í ræðu sem ég flutti við lok Madrid-ráðstefnunnar og á þingi Sameinuðu þjóðanna nú í haust, bent á þau gífurlegu útgjöld sem varið er til vígbúnaðar miðað við þá fátæki sem ríkir í heiminum og get þess vegna tekið undir orð hv. þm. Guðrúnar Agnarsdóttur að þessu leyti.

En við verðum, þrátt fyrir hve okkur renna til rifja hin háu útgjöld annars vegar til hernaðarviðbúnaðar og hin mikla fátækt sem ríkir í stórum hlutum heims hins vegar, að gera okkur grein fyrir því af raunsæi, að ef við viljum lifa frjáls og vernda friðinn þýðir ekki annað en að horfast í augu við að við verðum að vera viðbúin því að valdbeiting verði reynd í viðskiptum þjóða á milli. Við höfum reynslu frá seinni heimsstyrjöldinni í þeim efnum. Hefðum við verið viðbúin ofbeldi Hitlers hefði seinni heimsstyrjöldin væntanlega aldrei brotist út. Það er þess vegna vísasti vegurinn til að opna leið fyrir einræðisherrana og ofbeldisöflin í heiminum ef við látum af viðbúnaði og sinnum ekki vörnum hins lýðfrjálsa hluta heimsins.

Við verðum að hafa það í huga, þegar rætt er um eldflaugar Bandaríkjamanna sem setja skal niður á meginlandi Evrópu ef ekki takast samningar í Genfarviðræðum stórveldanna, að þær eldflaugar verða settar niður þar sem á að setja þær niður vegna beiðna Vestur-Evrópuþjóða. Frumkvöðull að þessu var fyrrverandi kanslari Vestur-Þýskalands, Helmut Schmidt, forustumaður jafnaðarmanna þar í landi. Við hljótum að gera okkur grein fyrir því að þessi ákvörðun var tekin af Atlantshafsbandalaginu í des. 1979, sem fólst í hinni tvíþættu samþykkt Atlantshafsbandalagsins, sem annars vegar fjallaði um að setja niður yfir 500 eldflaugar, en hins vegar að freista þess með öllu móti í viðræðum við Sovétríkin að fá þau til að taka niður þær eldflaugar sem þau höfðu þá þegar sett niður og voru á annað hundrað talsins í des. 1979. Þessar viðræður fóru seint af stað. Þær fóru ekki af stað fyrr en 1981. Bandaríkjamenn og Atlantshafsbandalagsríkin buðust þá til að leysa máið með því að allar meðaldrægar eldflaugar á meginlandi Evrópu væru teknar niður, það væri svokölluð núlllausn. Sovétmenn höfnuðu þessari afvopnunartillögu Atlantshafsbandalagsríkjanna. Það hefði verið besta lausnin að vera laus við þessar eldflaugar úr allri Evrópu.

Þegar hin tvíþætta ákvörðun Atlantshafsbandalagsins var tekin tókum við Íslendingar fram að við vildum ekki hafa slíkar eldflaugar á okkar yfirráðasvæði. Og við skiljum þess vegna mjög vel fólk sem ekki vill hafa slíkar eldflaugar á sínu yfirráðasvæði. En þetta er nauðvörn fólksins — nauðvörn gegn því að Sovétríkin höfðu þá sett á annað hundrað eldflaugar niður og skotmörkin voru Vestur-Evrópa. Síðan þá, 1979, þegar Sovétríkin héldu því fram að jafnvægi ríkti í þess konar vopnum milli stórveldanna og austurs og vesturs, hafa Sovétríkin sett niður a.m.k. eina eldflaug á hverri viku. Það fer lítið fyrir mótmætagöngum gagnvart Sovétríkjunum. Því miður hafa lýðfrjálsir menn á Vesturlöndum verið of sofandi gagnvart þessari þróun. Nú hafa Sovétríkin um 350–400 slíkar eldflaugar og hver þeirra er búin þrem kjarnaoddum. Öllum þessum eldflaugum er beint gegn skotmörkum í Vestur-Evrópu.

Gagnráðstöfunin af hálfu vestrænna ríkja er að setja niður meðaldrægar eldflaugar og það eru ekki önnur úrræði til meðan einræðisöflin láta sér ekki segjast og halda áfram vígbúnaði sínum, vegna þess að með sama áframhaldi hafa einræðisöflin ráð frjálsra þjóða í hendi sér. Einræðisöflin gætu hvenær sem er beitt þrýstingi gagnvart frjálsum ríkjum heimsins. Þessu verðum við að gera okkur ljósa grein fyrir um leið og við skulum leggja áherslu á að gera það sem í okkar valdi stendur til að eyða tortryggni milli þjóða og skapa það andrúmsloft í alþjóðlegum samskiptum að unnt sé að afvopnast með þeim hætti að um gagnkvæmni sé að ræða og alþjóðlegt tryggt eftirlit sé til staðar. En viðurkenningu á alþjóðlegu tryggu eftirliti hefur skort af hálfu Sovétríkjanna og sú afstaða Sovétríkjanna hefur verið mesti farartálminn í afvopnunartilraunum til þessa. Við verðum þrátt fyrir allt að gera okkur grein fyrir í hvaða heimi við búum.

Hv. 4. þm. Norðurl. e. Steingrímur Sigfússon taldi að Keflavíkurstöðin væri árásarstöð. Ég vara við slíkum málflutningi. Hann er ekki í samræmi við hagsmuni Íslands, ekki í samræmi við öryggishagsmuni Íslands. Í varnarstöðinni í Keflavík eru einungis þau vopn sem eru til varnar en ekki til árásar. Og það er aðeins til þess að gefa staðhæfingum Sovétríkjanna um hið gagnstæða byr undir báða vængi að halda öðru fram. Það er fyrir neðan virðingu hv. íslenskra alþm. Þau dæmi sem hv. þm. nefndi um AWACS-flugvélar, Helguvík og flugskýli eru ekki þess eðlis að breyti stöðinni í Keflavík úr varnarstöð eða eftirlitsstöð í árásarstöð, og þá allra síst ratsjárstöðvarnar, sem engin ákvörðun hefur enn verið tekin um að reisa en er nú verið að kanna hvort rétt sé að upp komi.

Ég skal ekki fjölyrða um þessi mál, en hlýt þó að segja að gefnu tilefni hv. 3. þm. Reykv. Svavars Gestssonar að neitunarvald Alþb. var í fyllsta máta óeðlilegt í varnar- og öryggismálum Íslendinga. En þó kom það ekki í veg fyrir að á þeim tíma sem Alþb. var í stjórn voru varnarliðsframkvæmdir með allra mesta móti. Þó — sem betur fer — kom neitunarvald Alþb. s.l fimm ár, og einkum s.l. þrjú ár, ekki í veg fyrir að á þessum tíma hefur flest það gerst sem t.d. hv. þm. Steingrímur Sigfússon taldi breyta varnarstöðinni í Keflavík í árásarstöð. Þær framkvæmdir sem hann taldi upp voru leyfðar í tíð Alþb. í ríkisstjórn. Það varð auðvitað þrátt fyrir neitunarvald Alþb. vegna þess að forveri minn lét ekki segja sér fyrir verkum, þrátt fyrir að Alþb. hefði áskilið sér í stjórnarsamningi neitunarvald. Það eina sem e.t.v. varð árangur af neitunarvaldinu frá sjónarmiði Alþb. var að ekki var byrjað að byggja flugstöð fyrir borgaralega flugfarþega til og frá landinu. Það var það afrek sem Alþb. vann og þó er þessi flugstöð forsenda þess að á milli verði skilið almennrar flugumferðar og hlutverks varnarstöðvarinnar. En Alþb. má ekki missa glæpinn sinn eins og kunnugt er og hefði væntanlega ekki fyrir neinu að berjast ef það gæti ekki tekið undir áróðurssöng herstöðvaandstæðinga svokallaðra.

Ég skal fara að ljúka máli mínu að sinni. Ég vil aðeins í lok þess leggja áherslu á að íslensk sérfræðiþekking á sviði öryggis-, varnar- og hermála verði efld og hún nýtt til að vega og meta þær öryggisráðstafanir sem við Ísendingar teljum í samræmi við okkar eigin hagsmuni. Okkur ber vissulega skylda til að hafa í huga öryggishagsmuni nágranna okkar og þeirra sem búa við sams konar lýðræðislegt stjórnarfar og við Íslendingar njótum, því að þegar hús nágrannans brennur er þínu hætt. En við þurfum þó fyrst og síðast ávallt að miða okkar gerðir og samstarf við önnur ríki út frá okkar eigin þjóðlegu hagsmunum til verndar sjálfstæði okkar og öryggi. Ég hef lýst því yfir að ég hef fullan hug á því, meðan ég gegni starfi utanrrh., að fá til starfa og nota þá íslenska starfskrafta sem til staðar eru og búa yfir slíkri sérfræðiþekkingu sem og að búa í haginn þannig að við eignumst fleiri slíka menn sem geti verið góðir ráðgjafar á þessu sviði í framtíðinni.