14.11.1983
Neðri deild: 13. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (644)
Umræður utan dagskrár
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég skal reyna að verða við eðlilegum tilmælum um að stytta mál mitt. Ég vil bæta hér nokkru við. Það hefur komið fram sú skoðun hér, að við Íslendingar fylgjumst illa með í varnarmálum. Ég hygg að það megi til sanns vegar færa að nokkru leyti. T.d. vitnar hæstv. utanrrh. hér í frumkvæði Þýskalandskanslara um að setja upp eldflaugar í Evrópu. Nú hefur það komið fram og legið fyrir alllengi að þegar á árinu 1976 ræddu menn í bandaríska þinginu um kostnað af þeirri áætlun. Þetta liggur fyrir staðfest. Ræða Þýskalandskanslara árið 1979 er því nokkuð gömul lumma í þessum efnum, um frumkvæði Evrópumanna að þeirri áætlun. En við þekkjum auðvitað þessa aðferð að láta biðja um greiðann að heiman. Ætli við höfum nú ekki fengið dæmi um það hér á Íslandi s.l vikur og mánuði.
Það virðist vera svo að ég lesi a.m.k. stundum Morgunblaðið betur en hæstv. utanrrh. Ég las fréttina um meint strandhögg Rússa á söndum austur þar og hafði gaman af. Ég veit ekki betur en þetta SOSUS-kaplakerfi sé að slitna næstum því daglega vegna þess að togarar togi í sundur strengina eða annað slíkt komi fyrir og þurfi að verja nokkru fé til að tjasla þeim saman. Þannig sé ég ekki ástæðu fyrir Rússa að vera að hætta sínu skinni og laumast upp undir sanda til að skera sundur kaplana og held það sé hægt að bollaleggja um ýmsar sennilegri skýringar á þessu óhappi, án þess að ég sé að harma það efnislega.
Ég er ekki sammála hæstv. sjútvrh. um að ekki sé þörf á lagasetningu til að banna hér veru kjarnorkuvopna, og að sjálfsögðu er ég þeirrar skoðunar að við eigum að friða íslensku efnahagslögsöguna alfarið fyrir kjarnorkuvopnum, umferð kjarnorkuknúinna farartækja um hana. Ég sé ekki betur en að með sömu rökum megi segja að öll lög séu óþörf og að öll lög séu vantraust á ríkjandi menn á hverjum tíma. Ef hæstv. sjútvrh. heldur því fram að það sé eitthvert vantraust við valdhafa framtíðarinnar að hér séu lög sem banni kjarnorkuvopn í landinu, þá er það málflutningur sem ég er einfaldlega ekki sammála. Og ég held að það megi, eins og ég segi, nota þá þá röksemd um öll lög að menn eigi að geta notað brjóstvitið eitt.
Vegna þeirra ummæla hv. þm. Kjartans Jóhannssonar og reyndar hæstv. utanrrh. að AWACS-flugvélarnar svonefndu væru hér eingöngu eftirlitstæki eða varnartæki vil ég enn benda á að hér kann að vera sami gallinn á, að menn fylgist ekki mjög vel með. Strax árið 1975, þegar áætlun um smíði AWACS-vélanna var til umræðu á Bandaríkjaþingi, var fyrir nefnd, sem um þetta mál fjallaði þar í þinginu, hlutverk AWACS-flugvélanna í árásarstríði skilgreint svohljóðandi:
„Að leggja til nauðsynlegar upplýsingar til árangursríkrar stjórnar árásar flugflota inn í Varsjárríkin og að gefa fyrirskipanir og stjórnarupplýsingar til að árásarflugfloti geti athafnað sig í afgerandi ferðum innan fjandsamlegs landsvæðis.“
Vilji hv. þm. og hæstv. ráðh. slá þessu upp, þá er þetta frá fundi sem U.S. Congress, Senate, hélt í Armed Services Committee, Hearings on Defense Authorization, árið 1977, hluti 9, bls. 4936.