15.11.1983
Sameinað þing: 19. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 832 í B-deild Alþingistíðinda. (670)

20. mál, hjartaskurðlækningar á Landspítalanum

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Herra forseti. Ég hjó eftir því hér áðan að hæstv. utanrrh. taldi að ratsjárstöðvar þær sem hér eru til umr. kæmu að gagni á friðartímum. Þetta virtist mér vera meginröksemdin í máli ráðh. Út frá því langar mig til að spyrja hæstv. utanrrh. um hans skoðun á því að hvaða gagni þessar ratsjárstöðvar kæmu á ófriðartímum í Norðurálfu.