15.11.1983
Sameinað þing: 19. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 834 í B-deild Alþingistíðinda. (674)
20. mál, hjartaskurðlækningar á Landspítalanum
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég þarf ekki að lýsa því yfir að ég er stuðningsmaður aðildar Íslands að Atlantshafsbandalaginu. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar, að það beri að gjalda varhug við því að reisa á Íslandi þau hernaðarmannvirki sem geta valdið ögrun. Þetta hefur verið mín skoðun í mörg ár og er það enn þá.
Ég vil hins vegar, ég hef verið að hugleiða það undir ræðu fyrrv. hæstv. félmrh. og núv. hv. þm. Svavars Gestssonar, spyrja hann að því hvort það geti ekki verið að þetta radarstöðvamál hafi komið inn á borð fyrrv. ríkisstj. þegar hann sat þar sem ráðh. og hvernig á því standi að allt í einu nú blossi upp þessi gífurlegi áhugi Alþb. á varnarmálunum á nýjan leik. Hér fór fram mikil umr. í gær um eldflaugar. Ég verð að segja að umr. og umr. hér í dag skjóta skökku við það umræðuleysi sem var af hálfu Alþb. meðan fyrrv. ríkisstj. var við völd. Hvað hefur breyst? Það gæti þó ekki verið að ástæðan fyrir allri þessari umr. væri sú að reyna að finna sameiningartákn fyrir þann fund sem nú er fram undan hjá Alþb. Er það hugsanlegur möguleiki? Ég efast ekki um að menn hér um slóðir kunna svör við þessari spurningu.
Ég ætla ekki á þessu stigi að fara út í tæknilega umr. um þau mál sem hér hafa verið á dagskrá undanfarnar mínútur. En það er hægt að segja býsna margt um þau. Sjálfur verð ég að segja að ég mundi hafa miklu meiri áhyggjur af hernaðarumsvifum á hafi umhverfis Ísland en ratsjárstöðvum sem m.a. munu aðstoða mjög landhelgisgæslu Íslands við staðsetningu og fleira af því tagi til að gæta hinnar íslensku landhelgi. Ég mundi spyrja þá hv. þm. Alþb. sem hingað hafa komið upp, hvort þeir hefðu nú ekki þessa stundina talsvert miklu meiri áhyggjur af stöðugt vaxandi umferð kjarnorkukafbáta og kjarnorkuknúinna skipa í nágrenni Íslands — eða hafa þeir leitað sér upplýsinga um hvað gæti gerst ef kjarnorkuknúið skip missti út geislavirkt kælivatn á hrygningarstöðvum íslenska fiskjarins umhverfis landið?
Herra forseti. Ég er þeirrar skoðunar, að umr. af þessu tagi, sem hér hefur hafist nú, þjóni ekki þeim tilgangi sem sú umr. ætti að þjóna. Hér þyrfti að fara fram löng og miklu ítarlegri og vandaðri umr. um utanríkismál og varnarmál.