15.11.1983
Sameinað þing: 19. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í B-deild Alþingistíðinda. (687)
56. mál, norrænt sjónvarpssamstarf
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Ég vil gera það að tillögu minni að þegar þm. bera fram fsp. í mörgum liðum, þannig að þær fela i raun og veru í sér margar fsp., þá verði forminu á þskj. breytt á þann veg að hver fsp. sé sjálfstæð svo að nægilegur tími gefist til þess að svara með viðhlítandi hætti.