15.11.1983
Sameinað þing: 19. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 846 í B-deild Alþingistíðinda. (690)
56. mál, norrænt sjónvarpssamstarf
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. menntmrh. fyrir greinargóð svör við þessari fsp., sem borin var fram í þremur liðum, til þess að skýra málið. Svör hæstv. ráðh. hafa leitt í ljós að íslensk stjórnvöld hafa í raun afskrifað þátttöku í hugsanlegu samstarfi um Tele-x-sendingar til Íslands. Þó kom það fram í máli hæstv. ráðh. að boðinn hefði verið frestur til þess að athuga málið frekar og ef áformað er að nota þann frest til frekari athugunar málsins. þá væri gott ef hæstv. ráðh. skæri úr um það. En ég tók orð hans svo, að þessu hefði í raun verið hafnað.
Afleiðingar af þessari ákvörðun eru þær m.a. að við komum ekki til með að njóta tilraunasendinga frá þessum sjónvarpshnetti, ef í verður ráðist, og er þó vissulega álitamál eins og hæstv. ráðh. nefndi, hvort taka eigi við slíkum kerfum, sem aðeins næðu til hluta landsmanna í upphafi a.m.k., en þarna er gert ráð fyrir óbeinni móttöku.
Þá hefur það komið fram í svari hæstv. ráðh. að enn séu möguleikar á athugun á samstarfi við Norðmenn og jafnvel víðtækara samstarfi Norðurlanda um Eutelsat-sendingar, sem norsk stjórnvöld hafa tryggt sér aðgang að með leigusamningi að ég best veit, og hv. þm. Gunnar Schram vék að þessu atriði sem athyglisverðum möguleika. Sá hnöttur kemur á braut einmitt um svipað leyti og möguleikar væru á að Tele-x-hnötturinn tæki til starfa. Ég vil almennt segja um þetta að við þurfum að vera mjög vel vakandi í þessum efnum. Ég hef verið hvetjandi þess að við værum jákvæðir í því samstarfi Norðurlanda sem lengi hefur verið á dagskrá og það alveg sérstaklega af menningarlegum ástæðum. Ég er áfram þeirrar skoðunar að við eigum öðru fremur að líta til þess. Það má segja að sá dráttur sem orðið hefur á Nordsat-áætluninni geti leitt til þess að við lentum hér í ákveðnar ógöngur, þ.e. að það verði mikill þrýstingur á það að komast í tengsl við gervitungl annars staðar frá, sem unnt væri að ná frá sjónvarpsefni fyrir utan Eutelsat-hnöttinn, þá t.d. Unisathnöttinn svokallaða sem einnig kemur inn í þessa mynd, og þá færu íslenskir sjónvarpsnotendur að koma sér upp búnaði, kannske kostnaðarsömum búnaði, til þess að geta notið slíkra sendinga og væri búið að leggja í þann kostnað áður en til samstarfs eða framkvæmda kæmi á Nordsat-áætluninni. Þetta er atriði sem vert er að hafa auga á og ég taldi, meðan ég fylgdist með þessum málum í ríkisstj., að það væri mikil ástæða til þess fyrir okkur að skoða þennan möguleika varðandi Tele-x, þrátt fyrir þá annmarka sem honum fylgja varðandi óbeina móttöku og hér hefur verið bent á.
Ég tel að íslensk stjórnvöld, sem um þessi mál fjalla, þurfi í rauninni að taka fastar á þessu en gert hefur verið á liðinni tíð. Nú vil ég ekki fullyrða hvernig að þessum málum er staðið af núv. hæstv. ríkisstj., en á meðan ég starfaði að þessum málum fannst mér sem erfitt væri að fá fram skilmerkilegar ákvarðanir á réttum tíma og fá í rauninni þær athuganir hér heima fyrir sem nauðsynlegar væru til þess að byggja á ákvarðanir af okkar hálfu. Það er sjálfsagt um fleiri þætti, þar sem margir eiga að koma við sögu, en þetta fannst mér agnúi á þessum athugunartíma, meðan ég fylgdist með, að þarna væri í rauninni ekki lagt nóg af mörkum og menn legðu ekki nóg á sig til þess að komast að niðurstöðu.
Ég ítreka svo það viðhorf að lokum, herra forseti, að við þurfum í sambandi við sjónvarpssamstarf, væntanlega norrænt sjónvarpssamstarf, að gæta þess að Íslendingar verði þar ekki aðeins þiggjendur heldur líka veitendur. Þess vegna ber að leggja mjög ríka áherslu á að búa vel að íslenska sjónvarpinu og reyndar Ríkisútvarpinu almennt til þess að það verði í stakk búið til að mæta aukinni samkeppni eða tengslum við erlendar stöðvar og vera einnig veitendur á því sviði, svo sem íslenskir sjónvarpsmenn og útvarpsmenn vissulega eru fullburða til.