15.11.1983
Sameinað þing: 19. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 849 í B-deild Alþingistíðinda. (696)

389. mál, málefni El Salvador á vettvangi Sameinuðu þjóðanna

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Kjartani Jóhannssyni fyrir að taka þetta mál hér upp og tel það jákvætt að hér hefur komið fram svar frá hæstv. utanrrh. sem hægt er að túlka sem já við stuðningi við hliðstæða tillögu, ef fram kæmi, á vettvangi Sameinuðu þjóðanna varðandi málefni EI Salvador. Það er ljóst að hætta er fyrir hendi ekki aðeins á óbreyttu hörmungarástandi í því landi og þessu svæði heldur vaxandi hætta á íhlutun af Bandaríkjanna hálfu í málefni El Salvador með stuðningi við þá einræðisstjórn sem þar hangir enn við völd. Það er full ástæða til þess fyrir íslensk stjórnvöld að taka þessi mál upp að eigin frumkvæði á alþjóðavettvangi og styðja viðleitni annarra til að koma í veg fyrir að ástandið á þessu svæði eigi enn eftir að versna. Hér er ekki aðeins EI Salvadormálið inni í myndinni. Við höfum nýlega fjallað um innrásina í Grenada og eigum eftir að gera það enn frekar hér á hv. Alþingi. Nicaragua er einnig í skotmáli þeirrar íhlutunarstefnu sem Bandaríkin standa nú fyrir á Mið-Ameríkusvæðinu.