15.11.1983
Sameinað þing: 20. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 862 í B-deild Alþingistíðinda. (718)

9. mál, afsögn þingmennsku

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Ég vil taka fram að ég hef heyrt aths. hv. þm. Það sem hv. þm. hefur sagt breytir í engu því sem hér hefur verið úrskurðað. En tekið verður til athugunar þetta tiltekna atriði, sem hann kemur hér fram með, að vefengja að kjörbréf hv. þm. Ellerts B. Schram hafi verið samþykkt.