21.11.1983
Efri deild: 17. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 950 í B-deild Alþingistíðinda. (805)

64. mál, Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins

Frsm. (Valdimar Indriðason):

Virðulegi forseti. Hér er til 2. umr. frv. til l. um breyt. á lögum um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins og það nál. sem sjútvn. Ed. varð sammála um að skila af sér. Þetta er frv. vegna skreiðarframleiðslunnar, það eigi að greiða upp í verðbætur úr Verðjöfnunarsjóði út á ákveðinn hluta af óseldum birgðum af skreið sem eru í landinu og erlendis. Sjútvn. varð öll sammála um að mæla með þessu frv. og var því eindregið hlynnt að málið yrði afgreitt sem fyrst. Hef ég ekki fleiri orð þar um. Það voru allir sammála um að þetta mál fengi sem fyrst afgreiðslu hér í hv. deild.