21.11.1983
Neðri deild: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 954 í B-deild Alþingistíðinda. (822)
11. mál, launamál
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Við 2. umr. um þetta frv. fluttum við þm. Alþfl. brtt. við ýmsar greinar til að sníða vankanta af þessum lögum í því skyni að gera þau réttlátari og sanngjarnari. Þessar till. voru m.a. um 15 þús. kr. lágmarkstekjur og um að felldar yrðu úr gildi heimildir ríkisstj. til sjálfvirkrar hækkunar á álögum á fólkið í landinu samkvæmt vísitölu, er m.a. hefur birst í sífelldum hækkunum á bensíni. Við atkvgr. við 2. umr. kom fram það viðhorf okkar Alþfl.-manna að við teldum rangt að hindra með lagasetningu hálft annað ár fram í tímann að aðilar vinnumarkaðarins geti samið um skynsamlegar kaupmáttartryggingar miðað við vísitölu, t.d. fyrir hina lægst launuðu, eins og 2. mgr. 1. gr. ber með sér að verði bannað með lögum, þótt við á hinn bóginn vildum ekki lýsa blessun okkar yfir því úrelta vísitölukerfi samkvæmt svonefndum Ólafslögum sem í gildi var til skamms tíma.
Þetta frv., eins og það stendur nú, að felldum brtt. okkar Alþfl.-manna og með banni við hvers kyns kaupmáttartryggingum miðað við vísitölu eitt og hálft ár fram í tímann, er bæði óréttlátt og óskynsamlegt. Við Alþfl.-menn erum því mótfallnir frv. í heild sinni. Ég segi nei.
Frv. afgr. til Ed.