21.11.1983
Neðri deild: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 957 í B-deild Alþingistíðinda. (826)
44. mál, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Mig furðar á því að hv. 3. þm. Reykv. skuli koma hér og spyrjast fyrir um þessi mál, hafandi verið í ríkisstj. undanfarin næstum fimm ár og því þessum málum mjög vel kunnugur. Ég tala nú ekki um frv. eins og þetta sem hér er til umr., því að sjálfur lagði hann fram á Alþingi fyrir fjórum árum nákvæmlega eins frv. Það eru einmitt þau lög sem lagt er til að breyta í dag. Það eru lög nr. 38 29. maí 1979, um heimild til hækkunar framlags Íslands til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þau lög hljóða svo með leyfi forseta:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:“
Og beri menn nú saman við það frv. sem hér er til umr. „1. gr. Ríkisstjórninni er heimilt að semja um hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum úr 29 milljónum sérstakra dráttarréttinda í 43.5 milljónir“ — en úr því er verið að hækka núna. —„Seðlabankinn skal leggja fram það fé, sem þarf vegna hækkunar kvótans, sbr. 22. gr. laga nr. 10 29. mars 1961, um Seðlabanka Íslands.
2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört í Reykjavík, 29. maí 1979.
Kristján Eldjárn.
Svavar Gestsson.“