18.10.1983
Sameinað þing: 5. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í B-deild Alþingistíðinda. (83)

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Góðir Íslendingar. Við höfum hlýtt á forsrh. lýsa ógnvænlegu ástandi þjóðmála þegar núverandi ríkisstj. tók til starfa. Hann hefur lýst mikilli verðbólgu og stórfelldri erlendri skuldasöfnun. Þessi lýsing forsrh. er vissulega rétt, en hún gefur ástæðu til að spyrja: Hver bar ábyrgð á því að svona fór og á því ástandi sem ráðh. lýsir? Málatilbúnaður ráðh. gefur tilefni til að spyrja: Hvar var núverandi forsrh. seinustu árin, meðan verðbólga óx stig af stigi og erlendu skuldirnar hlóðust upp? Svarið er reyndar einfalt, en vissulega hefur verið gefin ástæða til að rifja það upp. Hann sat í ríkisstjórn. Hann stóð að lántökunum. Hann bað um þær og greiddi þeim atkvæði sitt. Og enn má spyrja: Hvar var núverandi forsrh. meðan ofveiðin á miðunum var sem mest — sú ofveiði sem veldur nú aflatregðu? Jú, hann stjórnaði þá veiðinni. Hann réð þessari ofveiði. Hann var einmitt sjútvrh. En hann gerði meira. Hann hafði forgöngu um að hvert viðbótarfiskiskipið á fætur öðru var keypt til landsins á erlendum lánum. Það var m.a. þannig sem erlendu skuldirnar hlóðust upp sem hann kvartar nú undan og varar við.

Hvar var þá Alþb., sem nú gagnrýnir þessi ósköp? Jú, það stóð að þessari óráðsíu fullum fetum og ber fulla ábyrgð á því hvernig fór.

Núv. fjmrh. Albert Guðmundsson fer líka ófögrum orðum um viðskilnað fyrri ríkisstj. Það er þá líka ástæða til að rifja upp hver hlutur hans var á fyrra stjórnartímabili. Hann var hvorki meira né minna en höfundur þeirrar fyrrv. ríkisstjórnar sem hann nú úthúðar. Hún var mynduð á hans ábyrgð samkv. sérstöku bréfi frá honum. Ríkisstj. fyrrv., sem núv. fjmrh. gagnrýnir ótæpilega þessa dagana, var mynduð að sérstakri ósk hans. Hann ber því ábyrgð á henni og hennar gerðum. Þetta var óskastjórn hans!

Af málflutningi Steingríms Hermannssonar og Alberts Guðmundssonar mætti ráða að þeir hafi dottið niður af himnum í það ófremdarástand sem þeir lýsa, en það er nú aldeilis ekki. Þeir komu þessu ástandi á með dyggilegri aðstoð og í góðri samvinnu við Alþýðubandalagið, svo hvergi gekk hnífurinn á milli. Þeir eru því að kvarta undan sjálfum sér núna, þeir eru að lýsa eigin skipbroti. En lýsingarnar eru réttar. Verðbólgan var ógnvekjandi. Erlenda skuldasöfnunin var komin yfir hættumörk. Þessa braut mátti ekki fara fetinu lengra. Það varð að grípa í taumana og hefði auðvitað átt að gera það langtum fyrr.

Við höfum nú séð og reynt framgöngu ríkisstj. Vísitölukerfi launa var lagt til hliðar, enda hafði það gengið sér til húðar. En þar við situr. Í stað alhliða aðgerða er árangur í verðbólgumálum einhliða á kostnað launafólks og kaupmáttarskerðingin er mikil. Kaupmáttur launa er a.m.k. fjórðungi minni núna en að jafnaði á fyrra ári. Þetta er mikil fórn hjá launafólki — fórn sem erfitt er að færa til langframa mánuð eftir mánuð, fórn sem verður óbærileg þegar misrétti blasir við.

Það er erfitt að sjá réttlætið í því að launafólk verði að bera þungar byrðar þegar til eru nógir peningar til að reisa seðlabankahöll, til að reisa nýja mjólkurstöð hér í Reykjavík upp á heilan hektara að flatarmáli, til að hefja byggingu nýrrar kjötvinnslustöðvar í Reykjavík álíka stórrar, til að reisa fjárhús upp á 3 millj. til að skenkja góðbónda í Húnavatnssýslu, nógir peningar til að hafa fimm af sex ráðherrum Sjálfstfl. í útlöndum samtímis, nógir peningar til að kaupa bíla undir ráðh.

Áformin fyrir næsta ár, eins og þau birtast í fjárlagafrv., bera ekki heldur vott um jöfnuð. Tilkostnaðurinn við skrifstofuhald ráðherranna á yfirleitt að aukast um 70–110% á næsta ári á sama tíma og launafólki er ætluð 6% launahækkun. Við heyrum líka í fréttum að einmitt nú beri brýna nauðsyn til að skipadeild SÍS smíði erlendis nýtt kaupskip á erlendum lánum-og þá væntanlega með uppáskrift og blessun viðskrh. og félmrh. sem tæpast gátu kreist nema hungurlús út úr bankakerfinu til bjargar því unga fólki sem er að reyna að eignast húsnæði. Skýtur hér ekki skökku við? Þetta er þeirra réttlæti.

Um markmið á næsta ári vil ég segja þetta:

Það er staðreynd, sem við verðum að lifa við eins og nú er komið, að erlendu skuldirnar mega ekki aukast. Þess vegna verður að halda lántökum erlendis í lágmarki, þannig að þær mæti einungis þeim atborgunum sem koma til greiðslu. Það þýðir að erlendar lántökur á næsta ári verða að vera innan við 4 þús. millj. kr., eins og forsrh. sagði hér áðan, og ég ítreka að lántökurnar verða að vera það í reynd, en ekki bara á pappírnum, því að á þessu ári munu hin erlendu lán hafa farið um 2 þús. millj. kr. fram úr áætlun. Það er því eins gott fyrir ríkisstj. að hafa borð fyrir báru í lánsfjáráætlun þegar hún birtist.

Í annan stað verður ríkisstj., miðað við þær geysilegu fórnir sem launafólk hefur þegar fært, að efna það loforð sitt að koma verðbólgunni á næsta ári niður fyrir 10%. Fórnirnar hafa verið færðar. Ríkisstj. verður að standa við sinn hluta og það má ekki bresta.

Í þriðja lagi verða kjörin að byrja að batna á næsta ári og þegar í stað verður að gera ráðstafanir til að bæta kjör hinna lakast settu. Það er hörmulegt að menn skuli þurfa að þola það öllu lengur að hafa mánaðartekjur sem eru innan við 14–15 þús. kr. á mánuði. Samfélagið verður að leggja sitt af mörkum til að jafna þetta óréttlæti. Þessum markmiðum má ná. Það á að gera með því að stöðva ranga fjárfestingu og fresta óþarfri fjárfestingu. Það á að gera með því að deila byrðum réttlátlega og láta vera að setja fé í óþarfa.

Ríkisstj. á að ganga á undan á sínu eigin heimili. Það má frysta framkvæmdir sem geta beðið, hvort heldur í Seðlabanka, mjólkurstöðvum, stórhýsum Aðalverktaka eða bensínafgreiðslustöðvum og ýmsu fleira, og verja því fé, sem áformað er í þessar framkvæmdir, til að jafna kjörin, t.d. til að lána til húsnæðismála.

Hitt er þó ekki síður mikilvægt að grípa á meginþáttum atvinnulífsins. Nú viðurkenna t.d. nær allir að fiskiskipastóllinn, einkum togaraflotinn, sé of stór. Við skulum þá hætta að kýta um það, en sameinast um leiðir til þess að draga úr starfi hans og leita hugsanlegra verkefna á nýjum veiðislóðum.

Og það er staðreynd, að hefðbundin landbúnaðarframleiðsla er of mikil og of dýr. Hún er ekki of dýr vegna þess að bóndinn fái of mikið, heldur fyrst og fremst vegna þess að vinnslu- og dreifingaraðilarnir taka of mikið í sinn hlut og fjárfesta ótæpilega án nokkurs aðhalds. Við skulum stöðva þessa þróun, stokka upp verðmyndunarkerfið, stöðva röngu fjárfestinguna, stíga fyrstu skrefin í afnámi útflutningsbóta, draga úr niðurgreiðslufarganinu.

Það er líka staðreynd, að raforkuframleiðslan er of dýr á Íslandi og þegar er búið að virkja langt umfram orkusölu. Við skulum því einbeita okkur að því að leita kaupenda að því sem ónotað er af framleiðslugetu virkjana. Við skulum miða virkjanir við örugga og arðbæra sölu og endurskoða raforkukerfið og yfirstjórn þess og ákvarðanatöku til að lækka kostnaðarverð orkunnar.

Verði tekið á þessum grundvallaratriðum atvinnulífsins og sköpuð skilyrði til heilbrigðrar atvinnuuppbyggingar getum við komist úr vandræðafarinu og búið okkur góða framtíð. Ef það verður ekki gert mun verðbólga vaxa fyrr eða síðar á ný og lífskjörin ekki batna. Það er einmitt í þessu sem núv. ríkisstj. eins og hin fyrri hefur gjörsamlega brugðist.

Sú kaupmáttarrýrnun, sem almennt launafólk má nú þola, er þung og miskunnarlaus á mörgu heimilinu. Þingmenn stjórnarflokkanna ættu að hyggja að því, að þessi kjaraskerðing er ekki bara peningar, hún er líka álag og raunverulegar þjáningar hjá þeim sem ekki sjá hvernig þeir eiga að láta tekjurnar duga fyrir lífsframfæri sínu og hún er kvíði og ótti hjá þeim sem geta ekki staðið við skuldbindingar sínar. Ríkisstj. á að vera fyrir alla. Við jafnaðarmenn teljum að hinir verst settu þurfi sérstaklega á skilningi ríkisstj. að halda, en einmitt á það skortir mest. Miskunnarleysi prósentureikningsins má ekki bitna á hinum lakast settu. Ýmislegt bendir líka til þess, að misrétti sé að aukast í þjóðfélaginu og byrðum sé misjafnlega skipt. Það er óbærilegt. Sú efnahagsstefna sem felur það í sér er ekki einungis ranglát, hún er líka röng og mun bresta.

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Krafa okkar Alþýðuflokksmanna er sú, að byrðum sé réttlátlega dreift, að dregið sé úr misrétti, að láglaunahópum sé hlíft, að launafólk endurheimti strax þau mannréttindi að semja um kaup sitt og kjör. Krafa okkar er sú, að breytt verði um stefnu í atvinnu- og fjárfestingarmálum til að treysta og bæta lífskjörin. Stjórnmálin verða einmitt að snúast um það að bæta og treysta og jafna lífskjörin. Á það hefur skort hörmulega hjá Íslendingum.

Við Alþýðuflokksmenn ítrekum enn og aftur, að einungis með gerbreyttri stefnu, sem nær til allra þátta atvinnu- og efnahagslífs, næst raunhæfur og varanlegur árangur. Þeim árangri verðum við að ná. Það getum við ef menn taka saman höndum og ef horfið verður frá núverandi stjórnarstefnu. — Góðar stundir.