21.11.1983
Neðri deild: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 961 í B-deild Alþingistíðinda. (830)

44. mál, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Þetta mál verður sífellt fróðlegra með hverri ræðu sem hæstv. ráðh. flytja. Þess vegna væri vel þess virði að halda þessari umr. áfram til að fá svo skýru ljósi varpað á ástand landsstjórnarinnar eins og gerist nú með hverri ræðunni sem hæstv. ráðh. flytja.

Hæstv. fjmrh. segist vera að læra margt í fjmrn. Ekki dreg ég það í efa að fyrrv. fjmrh. Matthías Á. Mathiesen hafi kennt honum margt og sé enn að kenna honum margt. Þessu hefur þjóðin tekið eftir vegna þess að hæstv. fjmrh. er hættur að koma með einfaldar patentlausnir, hvort sem það snertir sölu ríkisfyrirtækja eða vanda útgerðarinnar. Aðrit ráðh. eru smátt og smátt að benda honum á veruleika stjórnarfarsins og þjóðlífsins. En hæstv. fjmrh. upplýsti að hann hefði á ríkisstj.-fundi lýst andstöðu sinni við málið. Það er alveg greinilegt á þeirri frásögn sem hér var flutt, að á þessum fundi í ríkisstjórn landsins hefur ekki einn einasti ráðh, getað upplýst hæstv. fjmrh. um eðli málsins. Hann fór þess vegna af ríkisstj.-fundinum í fullri andstöðu við málið án þess að hæstv. viðskrh. né hæstv. forsrh. hefðu á fundinum getað veitt hæstv. fjmrh. þær upplýsingar sem honum dygðu. Hæstv. fjmrh. verður að grípa til þess ráðs að óska eftir bréfaskriftum frá Seðlabankanum vegna þess að samráðherrar hans, flm. málsins, hafa á engan hátt getað lagt það þannig fyrir í ríkisstj. að það nægði hæstv. fjmrh. Í öðrum kafla málsins fær hann bréf frá Seðlabankanum, en það dugir honum ekki heldur. Hann verður að biðja um annað bréf frá Seðlabankanum til þess að hafa enn frekar skrifað og bókfest það sem hann er að reyna að ná fram í málinu. Með öðrum orðum er ástandið þannig í ríkisstjórn Íslands að orð samráðherra eru ekki tekin gild sem skýringar eða tæmandi röksemdir með frv. sem lögð eru fram, heldur verður fjmrh. að krefjast ítarlegra bréfaskrifta Seðlabankans. En hvað segir svo þetta síðasta bréf Seðlabankans? Jú, það segir að það muni engin krafa falla á Ísland hvorki fyrr né síðar, ef ég heyrði rétt. Hæstv. fjmrh. játar því hér í hliðarsal að engin krafa muni falla á Ísland hvorki fyrr né síðar. Í fyrra bréfinu er það svo upplýst að þarna sé að fá hagstæðustu lán sem Ísland geti fengið, ef ég heyrði rétt. Þá er það ljóst að hér er komin alveg gullin leið, ef allt þetta mál er eins auðvelt og slétt og hæstv. fjmrh. upplýsti hér, fyrir Íslendinga til að sækja inn á algerlega nýjan lánamarkað. Spurning blasir þá við og væri æskilegt að hæstv. fjmrh. og viðskrh. svöruðu. Hvers vegna í ósköpunum er þessi hækkun þá ekki bara höfð enn meiri í frv.? Ef það er eðli málsins að það mun engin krafa falla á Ísland hvorki fyrr né síðar, en í krafti þessa frv. geti Ísland nú sótt um ný lán á hagstæðustu kjörum sem bjóðast í veröldinni. Hvers vegna í ósköpunum er ekki hægt að hækka þetta allverulega, myndarlega, svo að við getum þá haft verulegan afgang af þessum hagstæðustu lánum, fellt niður ýmis önnur lán sem við erum með, breytt þeim yfir í þessi lán og sparað þjóðinni þannig stórfellda fjármuni?

Ef á að taka góðar og gildar þær röksemdafærslur og bréfaskriftir sem hér hafa verið lesnar upp, þá er það greinilega niðurstaðan að Alþingi ætti að stórhækka þennan kvóta í frv. og opna þannig möguleika samkv. röksemdafærslu Seðlabankans og hæstv. fjmrh. til þess að spara þjóðinni stórfé með því að geta sótt í þessi hagstæðustu lán. Það væri æskilegt að hæstv. viðskrh. svaraði því hér, ef lýsing hæstv. fjmrh. er rétt, hvers vegna í ósköpunum sækir viðskrh. þá ekki um að hækka kvótann enn frekar?

Það stendur enn þá eftir af þessum umr. að hæstv. fjmrh. hefur fengið bréf frá Seðlabanka Íslands þar sem það er upplýst að Íslendingar geti hækkað hlut sinn hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, fært fé af reikningum, sem Seðlabanki Íslands á erlendis, yfir á þessa reikninga og það muni hvorki fyrr né síðar koma nein krafa í málinu til þjóðarinnar. Ég er ekki viss um að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sé sömu skoðunar því að slíkt kapp hafa forsvarsmenn þessarar stofnunar lagt á það að fá hækkanir frá öðrum ríkjum að þeir telja framtíðarhag sjóðsins vera undir því komin að slíkar hækkanir fáist.

Herra forseti. Það væri æskilegt, til þess að þetta mál geti haldið áfram að upplýsast, að hæstv. viðskrh. svaraði því hér, ef þau rök eru gild fyrir hæstv. fjmrh. sem Seðlabankinn hefur fært honum í bréfi sínu, hvers vegna í ósköpunum hæstv. viðskrh. sæki þá ekki um enn meiri hækkun svo að þjóðin geti þá gengið í þessa hagkvæmu lánalind sem seðlabankastjóri Jóhannes Nordal hefur reynt að telja hæstv. fjmrh. trú um að þarna sé fyrir hendi.