21.11.1983
Neðri deild: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 962 í B-deild Alþingistíðinda. (831)
44. mál, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Það var spurt hvers vegna ekki væri lögð til meiri hækkun á kvóta Íslands en hér er gert ráð fyrir. Það er gert ráð fyrir því með þessu frv. að nýta það hlutfall af kvóta gjaldeyrissjóðsins sem Ísland hefur í dag og nýta hann að fullu. Þess vegna er þessi tala hér í þessu frv. Við óskum eftir að halda því hlutfalli af kvóta Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem við höfum og leggjum því til þessa hækkun.