21.11.1983
Neðri deild: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 965 í B-deild Alþingistíðinda. (838)

Um þingsköp

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ég mótmæli því, sem fram kom hjá hv. 3. þm. Reykv., að hér sé um óvenjuleg vinnubrögð að ræða í sambandi við 3. umr. máls sem enginn ágreiningur er um, en samkv. því nái. sem fyrir liggur eru allir nm. sammála og mæla með þessu frv. Ég taldi mig, hafa svarað þeirri fsp. sem hv. þm. kom fram með. En það hvarflar ekki að mér að þvinga einhverja hluti fram. Upplýsingar þær sem fyrrv. viðskrh. bað um, en hann vildi fá þær bréflega, er mjög auðvelt að tryggja að liggi fyrir nefndarfundi í Ed., þannig að það mál þarf ekki með einum eða öðrum hætti að tefja fyrir afgreiðslu þessa máls.