18.10.1983
Sameinað þing: 5. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í B-deild Alþingistíðinda. (84)
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Ætli það rynnu ekki tvær grímur á þann áheyranda sem hefði ekki heyrt til hæstv. forsrh. síðan fyrir kosningar 1979 þar til nú? Mundi hann ekki spyrja sjálfan sig hvort þetta væri sami Steingrímur eða hvort hann hefði e.t.v. gripið með sér vitlaust ræðuhandrit? Þess vegna segi ég þetta, að haustið 1979 lýsti formaður Framsfl. yfir stríði á hendur leiftursókn Sjálfstfl. Aðalatriði hennar voru afnám vísitölukerfis og niðurskurður ríkisútgjalda. Gefum Steingrími árgerð 79 orðið með leyfi forseta:
„Þeir sjálfstæðismenn reyna að telja fólki trú um að þeir geti náð verðbólgunni niður á það stig, sem er í nágrannalöndum okkar, á 100 dögum. Þessi boðskapur einn boðar ekkert annað en kreppu.“ Tilvitnun lýkur. Steingrímur árgerð 79.
Og áfram: „Þessum tillögum lætur Sjálfstfl. fylgja mikinn samdrátt í framkvæmdum. Þeir vilja skera, skera, skera. Þessu mun fylgja atvinnuleysi, en við framsóknarmenn vísum því algerlega á bug, að komið verði á atvinnuleysi til þess að ná einhverjum áfanga í stríðinu við verðbólguna.“ Tilvitnun lýkur. Steingrímur árgerð 79. Heimild: Dagblaðið Tíminn 13. nóv. 1979.
Árið 1979 hafnaði hæstv. forsrh. hvoru tveggja, stefnu núv. ríkisstj. og stjórnarsamvinnu við Sjálfstfl. „Það sem að helst hann varast vann, varð þó að koma yfir hann,“ eins og sálmaskáldið sagði.
Hvað hefur breyst? Ekkert. Það var ekki heil brú í stefnu Framsfl. og það hc:fur ekkert breyst.
Ásamt með Steingrími er formaður Alþb. ómissandi við vitnaleiðslur um gjaldþrotaskipti síðustu ríkisstjórnar. Hann mun hér á eftir bíta í skjaldarrendur og láta ófriðlega út af þeirri lífskjarafórn sem nú bitnar á launþegum. Skyldu ekki vakna óþægilegar spurningar í hugskoti áheyrenda? Í fimm ár hefur Alþb. að eigin sögn, mátsvari sósíalisma. verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis, verið Framsókn eins og Síamstvíburi í stjórn landsins. Hver er dómur reynslunnar? Hinir þjóðlegu atvinnuvegir okkar voru sokknir í skuldir. Efnahagslegt sjálfstæði okkar var veðsett erlendum lánadrottnum, lífskjarafórn alþýðu var orðinn hlutur. Og þótt fétagi Svavar bíti nú í skjaldarrendur verður hann að bíta í það súra epli í leiðinni, að lífskjarafórnin nú er að 2/3 hlutum gjaldfallnar vanskilaskuldir úr sameiginlegu þrotabúi hans og hæstv. forsrh.
Báðir eru þessir flokkar því siðferðilega dæmdir úr leik af verkum sínum. Þeir fóstbræður geta nú tekið undir með Vatnsenda-Rósu þegar hún kvað:
Man ég okkar fyrri fund,
forn þótt ástin réni,
nú er líkt og hundur hund
hitti á tófugreni.
Því aðeins rifjum við upp fortíðina, að við viljum læra af mistökunum. Úr því sem komið er þurfum við að leita svara við fjórum spurningum: Er lífskjarafórnin óhjákvæmileg? Tekur ríkisstj. tillit til greiðslugetu þegar hún framvísar bakreikningum Framsóknaráratugarins? Er hún á réttri leið? Er stefna hennar líkleg til að skila árangri til frambúðar?
1. spurning: Er lífskjarafórnin óhjákvæmileg? Já, því miður. Ríkisstjórn, sem stendur á rústum Framsóknaráratugarins, á engra góðra kosta völ. Hvaða ríkisstj. sem var hefði orðið að stíga á bremsur, rétta af viðskiptahalla, stöðva erlenda skuldasöfnun með því að draga úr neyslu, fjárfestingu og ríkisútgjöldum.
2. spurning: Hvað um greiðslugetuna og réttlætið? Það er að vísu hálfsannleikur þegar hæstv. forsrh. segir að þjóðin hafi lifað um efni fram. Um það bil fjórðungur fjölskyldna í landinu hefur ekki haft efni á því að lifa um efni fram. Þessar fjölskyldur hafa ekki haft efni á því að byggja. Þær eyddu ekki gjaldeyri í siglingar. Þær fá ekki niðurfelld aðflutningsgjöld á bifreiðum. Þær hafa ekki efni á að reka bifreið. samt er þeim ætlað að borga mun meira en hinum sem stjórnvöld hafa selt sjálfdæmi um kaup og kjör og standa utan við skattakerfið. Og svipt samningsrétti í kaupbæti. Um þetta má segja að vont er þeirra ranglæti en verra er þeirra réttlæti.
3. spurning: Hefur afnám vísitölukerfisins og lögboðin kauplækkun borið árangur í lægri verðbólgu? Já, tvímælalaust. Verðbólguhraðinn var í tíð fyrrv. ríkisstj. á þriggja mánaða tímabili til 1. maí í vor 130%. Verðbólguhraðinn miðað við framfærsluvísitölu í septembermánuði, reiknað til árshraða, er 45% og fer lækkandi.
4. Er þá ríkisstj. á réttri leið? Reynslan mun skera úr um það. En reynslan kennir okkur líka að ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar 1974–1978 og meira að segja fyrrv. þrotabúsríkisstjórn tókst að lækka verðbólgu tímabundið með því að binda gengi og skerða verðbætur á laun við hagstæð ytri skilyrði. Hvorug ríkisstjórnin náði þó neinum árangri til frambúðar, eins og hæstv. utanrrh. viðurkenndi hér áðan.
Hvað má læra af þessari reynslu? M.a. að of há laun eru ekki undirrót verðbólgu. Spyrjið atvinnurekendur. Þeir munu viðurkenna að hlutfall launa hefur farið lækkandi í framleiðslukostnaði undanfarin ár, enda eru launin lægri hluti þjóðartekna hjá okkur en öðrum.
Verðhækkunaröldur sigla jafnan í kjölfar nýrra gengisfellinga og gengissigs. Ég spyr: Hvað veldur látlausum þrýstingi á gengið? Launin í frystihúsunum, launin hjá iðnverkafólkinu eða hlutur sjómanna, sem hefur farið síminnkandi þrátt fyrir óbreytt strit? Atvinnurekendur munu viðurkenna að svo er ekki. Hver er þá skýringin? Það er offjárfesting. Fjárfesting er miklu hærra hlutfall þjóðartekna hjá okkur Íslendingum en annarra. Þessi fjárfesting eða allt of stór hluti hennar hefur hvorki skilað okkur auknum gjaldeyristekjum né sparað okkur gjaldeyri, heldur þvert á móti kallað yfir okkur meiri skuldir, meiri fjármagnskostnað. Það er allt of hátt hlutfall fjárfestingar — og uppsafnaður skulda- og fjármagnskostnaður af þeim sökum, sem sprengir upp framleiðslukostnað útflutningsgreina, gerir þær ósamkeppnisfærar. Það er þessi offjárfesting sem knýr áfram stöðugar gengisfellingar og verðhækkanir. Það er þarna, sem sprengirými verðbólgunnar er að finna. Hvað þýðir þetta á mæltu máli? Þetta þýðir að þegar fyrrv. sjútvrh. tók erlend lán og úthlutaði sk.jólstæðingum sínum æ fleiri togurum, þá var hann að gefa út víxil á þjóðina sem nú er gjaldfaldinn og greiðist á næstu árum með skertum lífskjörum.
Sömu sögu er að segja um offramleiðslu í landbúnaði, í orkumannvirkjum, í verslun, í bankahöllum, í opinberri þjónustu. Hvað voru þeir að hugsa, Steingrímur, Svavar og Albert, meðan þessu fór fram? Ég veit það ekki. En ég veit allavega að þeir hugsuðu ekki um afleiðingar gerða sinna; að stefna þeirra í reynd var langtímaáætlun gegn lífskjörum, sem við nú súpum seyðið af.
Menn spyrja: Er ríkisstj. á réttri leið? Svarið er að meðan hún er ófáanleg til þess að hrófla við hinum heilögu kúm Framsóknaráratugarins, offjárfestingunni, sem er undirrót óðaverðbólgunnar, þá fer hún vill vegar. Þá verða fórnirnar færðar til einskis, því miður. Þá mun aftur sækja í sama farið.
Það er ekkert launungarmál að útgerðin er nú rekin með dúndrandi tapi. Steingrímstogararnir, sem aldrei var rekstrargrundvöllur fyrir, hafa verið gerðir út á banka, lánasjóði og að lokum á skattgreiðendur. Falli gengið munu öll verðbólgumarkmið hæstv. ríkisstj. rjúka út í veður og vind. Þá er borin von um árangur til frambúðar.
Hvað viljum við jafnaðarmenn gera? er spurt. Svarið er: Við viljum gera það sem gera þarf til að tryggja árangur til frambúðar.
Í fyrsta lagi sögðum við fyrir kosningar að gamla vísitölukerfið hefði gengið sér til húðar. Rökin fyrir því eru nákvæmlega hin sömu og Þröstur Ólafsson, núverandi aðstoðarmaður hjá Dagsbrún, tilfærði í blaðagrein, þegar hann segir: Verðbótakerfið tryggir viðgang verðbólgunnar. En við viljum ekki láta launþega eina færa fórnir. Sjálfvirka verðbólguhringekju er víða að finna.
Þess vegna viljum við í öðru lagi afnema sjálfvirka viðmiðun búvöruverðs við laun. Bændur eru atvinnurekendur og afkoma atvinnurekenda ræðst af öðrum þáttum, eftirspurn á markaði og hagkvæmni í rekstri.
Við viljum í þriðja lagi afnema lögbundna og sjálfvirka tryggingu skattgreiðenda fyrir offramleiðslu í landbúnaði.
Í fjórða lagi viljum við verja hluta af því fé, nú 1.5 milljarði kr., sem fer í styrki, niðurgreiðslur og útflutningsbætur, til þess að lækka tekjuskatt á láglaunafólki.
Við viljum í fimmta lagi, til að létta af linnulausum þrýstingi á fiskverð og gengi, taka verstu skuldakóngana í útgerð út úr gengisákvörðunardæminu og finna Steingrímstogurunum önnur verkefni. Þetta kallar á sérstakar aðgerðir til að samræma veiðar og vinnslu.
Við viljum í sjötta lagi leggja niður Framkvæmdastofnun ríkisins, sameina fjárfestingarlánasjóði, fela þá umsjá bankakerfisins, og stjórna fjárveitingum út frá venjulegum arðsemissjónarmiðum.
Þetta allt viljum við gera til þess að koma í veg fyrir að áframhaldandi mistök í fjármagnsstýringu eyðileggi jafnóðum tímabundinn árangur í hjöðnun verðbólgu eftir öðrum leiðum.
Verði þessi leið farin hygg ég að enginn gæti haldið því fram að launþegum einum væri ætlað að greiða herkostnað verðbólgunnar. Á móti kæmi að skattpíningu almennings vegna milliliðakerfis í landbúnaði væri aflétt, fjáraustri til skuldakónga væri hætt og það væri létt á þrýstingi á linnulausar gengisfellingar. Þar með væri bundinn endir á aðstöðu fyrirgreiðslupólitíkusa til að úthluta skjólstæðingum sínum niðurgreiddum lánum og styrkjum. Þar með hefði styrjaldartilefnum milli verkalýðshreyfingar og ríkisvalds fækkað. Það hefði skapast friður um nauðsynlegar viðreisnarráðstafanir, vegna þess að launþegum hefði ekki verið ætlað einum að bera byrðarnar. Þar með hefðu vonir manna um varanlegan árangur í viðureign við verðbólgu styrkst.
Og eitt er víst, að lokum, herra forseti. Alþfl. hefði aldrei fallist á afnám samningsréttarins við þessi skilyrði. Það var þarflaus aðgerð og frámunalega heimskuleg. Í okkar augum er frjáls samningsréttur grundvallarregla sem halda ber í heiðri í lýðræðisþjóðfélagi. Þegar þjóðartekjur fara minnkandi verður að breyta tekjuskiptingunni innbyrðis ef ekki er unnt að auka hlut launþega í heild. Þá er einmitt sérstök ástæða til að láta reyna á félagsþroska verkalýðshreyfingarinnar í frjálsum samningum. Það er réttlætismál, sem nú finnur djúpan hljómgrunn um allt þjóðfélagið, að hækkun lægstu launa hafi algeran forgang í næstu samningum. Hvers vegna þá að svipta verkalýðshreyfinguna ábyrgð og efna til ófriðar um sjálfar leikreglur lýðræðisins? Þau orð eru enn í fullu gildi, að ef menn slíta í sundur lögin, þá slíta þeir og í sundur friðinn.