21.11.1983
Neðri deild: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 969 í B-deild Alþingistíðinda. (842)
Umræður utan dagskrár
Garðar Sigurðsson:
Herra forseti. Við höfum slæmar fréttir af þorskstofninum, við höfum veitt of mikið af smáfiski um mörg undanfarin ár og ég tel mjög rangt að leyfa veiðar á rækju eða öðrum sjávardýrum ef það hefur í för með sér að drepa ungviðið í stórum stíl, eins og hér er um að tefla. Ég tel að það ætti frekar að herða þessar reglur en að slaka til og, herra forseti, ég leyfi mér að lýsa því yfir að ég styð hæstv. sjútvrh. í öllu sem hann sagði í síðustu ræðu.