22.11.1983
Sameinað þing: 23. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 970 í B-deild Alþingistíðinda. (845)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 22. nóv. 1983. Ólafur Jóhannesson, 9. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna veikinda mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Haraldur Ólafsson dósent, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Salome Þorkelsdóttir,

forseti Ed.“

Bréfi þessu fylgir kjörbréf Haralds Ólafssonar og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréf þetta til rannsóknar. Á meðan er fundi frestað í 5 mínútur. –[Fundarhlé.]