22.11.1983
Sameinað þing: 23. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 977 í B-deild Alþingistíðinda. (864)
94. mál, samstarfsnefnd um iðnráðgjöf
Fyrirspyrjandi (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég hef ásamt með hv. þm. Guðmundi Bjarnasyni leyft mér að leggja fram á þskj. 115 fsp. til iðnrh. um samstarfsnefnd um iðnráðgjöf í landshlutum.
1. liður þessarar fsp. er svohljóðandi:
Hvert er starfssvið samstarfsnefndar um iðnráðgjöf í landshlutum og að hvaða verkefnum hefur hún unnið?
2. Hverjir sitja í nefndinni og hverjir eru starfsmenn hennar?
3. Hver er kostnaður við störf nefndarinnar?