22.11.1983
Sameinað þing: 23. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 979 í B-deild Alþingistíðinda. (866)

94. mál, samstarfsnefnd um iðnráðgjöf

Fyrirspyrjandi (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. iðnrh. greið svör. Ég tók ekki eftir því að hann svaraði 3. liðnum þó — (Iðnrh.: Ég á eftir að svara því.) — og það var nú eitt af því sem ég spurði um. Ég þakka fyrir að hæstv. iðnrh. ætlar að svara þessu vegna þess að grunur minn er sá að þetta hafi nú ekki verið eingöngu fórnarstarf. Og satt að segja þá er ég ekki viss um nauðsyn þessarar starfsemi samstarfsnefndar og leikur því forvitni á að sjá þá áfangaskýrslu um störf nefndarinnar sem hér var lofað.

Lög um iðnráðgjafa voru sett árið 1981, ef ég man rétt.

Í frv. til l. var skilgreint verksvið þeirra og vil ég úr athugasemdum lesa eina mgr., með leyfi forseta: „Gera verður ráð fyrir að það taki sinn tíma að kynna ráðgjafaþjónustuna. Því er líklegt að a.m.k. fyrst í stað verði eftirspurn eftir ráðgjöf ekki í samræmi við raunverulega þörf. — Með nokkrum rétti má segja að meðal verkefna iðnráðgjafanna verði að plægja akurinn og skapa þannig þörf fyrir eigin aðstoð.“

Þetta er orðalag sem stingur mig dálítið — „og skapa þannig þörf fyrir eigin aðstoð.“ Nú hygg ég að þessi þörf hafi skapast. Og ég vil ekki gera lítið úr störfum iðnráðgjafa. A.m.k. hafa á Norðurlandi starfað, ja — tveir iðnráðgjafar, hver eftir annan — og ég held að þeir hafi skilað góðu starfi. Og ég held einmitt að þeim peningum sem varið er til þessarar starfsemi sé betur varið til þess að efla starfsemina úti á akrinum fremur en halda uppi sérstökum starfshóp hér í Reykjavík til þess að halda fimm fundi með þessum iðnráðgjöfum. Það er eitt kjördæmi sem ekki hefur enn þá haft tækifæri til þess að fá iðnráðgjafa til sín. Það eru iðnráðgjafar búsettir í öllum öðrum kjördæmum en Norðurl. v. Og ég legg á það áherslu að ég tel að ef peningar eru tiltækir til þess að starfa að þessu verkefni — og það held ég við megum nú til að vona — þá verði staðsettur iðnráðgjafi í Norðurl. v. strax og hentugleikar leyfa.