22.11.1983
Sameinað þing: 23. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 980 í B-deild Alþingistíðinda. (867)
94. mál, samstarfsnefnd um iðnráðgjöf
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Ég biðst afsökunar á því að hér mislagðist eitt blað, svar við þriðju spurningunni: Hver er kostnaður við störf nefndarinnar?
Og hann er sem hér greinir: Samkvæmt skipunarbréfi ákveður þóknananefnd fjmrn. greiðslur fyrir störf nefndarinnar. Engin þóknun hefur enn verið greidd.
Ég tel rétt að gera hér grein fyrir því hvernig kostnaður við framkvæmd laganna hefur skipst á árinu 1982 og það sem af er þessu ári. Framlög til landshlutasamtaka eða iðnþróunarfélaga voru á árinu 1982 843 þús., í ár 1 866 þús. Kostnaður við samræmingu og þjónustu hjá 1ðntæknistofnun og stuðningsaðgerðir á vegum nefndarinnar árið 1982 117 þús., í ár 565 þús. Framlög ríkisins til ráðningaaðila iðnráðgjafanna nema aðeins hluta, líklega um helmingi, af heildarkostnaði við starfsemi iðnráðgjafanna. Það, sem á vantar, greiða landshlutasamtök eða iðnþróunarfélög á viðkomandi svæði. Þetta er nauðsynlegt að hafa í huga þegar rætt er um hlutdeild kostnaðar við samræmingu í heildarframlagi ríkisins til iðnráðgjafastarfseminnar.
Varðandi mismunandi hlutfall þessa kostnaðar á þessu og síðasta ári er þess að geta að starfsmaður nefndarinnar var ekki ráðinn fyrr en í byrjun ágúst á árinu 1982. En hið beina svar við spurningunni um kostnað við störf sjálfrar nefndarinnar er að það hefur ekki verið ákveðin enn þóknun til handa þessari samstarfsnefnd.