22.11.1983
Sameinað þing: 23. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 981 í B-deild Alþingistíðinda. (870)

94. mál, samstarfsnefnd um iðnráðgjöf

Fyrirspyrjandi (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég þakka fyrir tækifæri til þess að gera örstutta aths.

Ég tel að iðnþróunarráðgjafarnir geti sem hægast haft samstarf sín á milli og samstarf við stofnanir iðnaðar hjálparlaust. Þeir eru ekkert í vandræðum. Þeir kunna á símann, þeir eru sendibréfsfærir og hafa fullt ferðafrelsi.