22.11.1983
Sameinað þing: 23. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 986 í B-deild Alþingistíðinda. (876)
400. mál, bankaútibú
Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Ég skal reyna að gefa eins skýr svör og ég mögulega get að fengnum þeim upplýsingum sem ég hef óskað eftir. Hv. þm. spyr um kostnað, stofnkostnað svo og áætlaðan rekstrarkostnað þeirra 11 nýju bankaútibúa sem veitt var leyfi fyrir á síðasta ári og fram á fyrri hluta þessa árs.
Ég leyfi mér að svara samtímis stofnkostnaði og rekstrarkostnaði hvers útibús eftir þeim upplýsingum sem ég hef fengið.
1. Stofnkostnaður við útibú Landsbankans á Skagaströnd nam 1 millj. 730 þús., árlegur rekstrarkostnaður 3 millj. 200 þús.
2. Stofnkostnaður við útibú Landsbankans á patreksfirði nam 7 millj. 10 þús. Árlegur rekstrarkostnaður 2.2 millj.
3. Stofnkostnaður við afgreiðslu Landsbankans við Höfðabakka í Reykjavík er áætlaður 6 millj. 120 þús., en rekstrarkostnaður áætlaður 1.1 millj. á þessu ári.
4. Stofnkostnaður við útibú Útvegsbankans í Hólahverfi í Breiðholti liggur ekki fyrir, en útlagður kostnaður nú nemur 5 millj. 127 þús. kr. og áætlaður rekstrarkostnaður um það bil 2.5 millj. kr. á ári.
5. Stofnkostnaður við afgreiðslu Búnaðarbankans í Þykkvabæ nam 199 þús. kr. Áætlaður rekstrarkostnaður á þessu ári 131 þús.
6. Við stofnun útibús Búnaðarbankans í Grundarfirði greiddi bankinn fyrir fasteign, skrifstofu, áhöld og húsbúnað 1 millj. 156 þús. Áætlaður rekstrarkostnaður á þessu ári er 3 millj. 303 þús. kr.
7. Stofnkostnaður við útibú Búnaðarbankans í Kópavogi nam 5 millj. 391 þús. Áætlaður rekstrarkostnaður í þá þrjá mánuði sem útibúið er starfrækt á þessu ári 1 millj. 44 þús.
8. Hjá Samvinnubankanum fengust þær upplýsingar að engin kostnaðaráætlun hefði verið gerð um stofnkostnað eða rekstrarkostnað vegna útibús bankans á Ísafirði, en leyfi til stofnunar þess útibús var veitt, eins og fram kom hér, fyrr á þessu ári.
9. Stofnkostnaður við útibú Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis á Seltjarnarnesi er áætlaður 4.6 millj. Áætlaður rekstrarkostnaður nemur 2.4 millj.
10. Í svari Sparisjóðs Hafnarfjarðar vegna afgreiðslu í suðurbænum segir að ákveðið hafi verið að fresta því um sinn en áætlaður stofnkostnaður vegna þessarar afgreiðslu nam 4.5 millj., ef hús væri keypt undir starfsemina, en 2 millj. 925 þús. ef húsnæðið væri tekið á leigu. Áætlaður rekstrarkostnaður var talinn 2 millj. 148 þús.
11. Í svari Iðnaðarbankans vegna afgreiðslu við Réttarholtsveg í Reykjavík kom fram að bankastjórnin taldi sér ekki skylt að gefa umbeðnar upplýsingar nema sem trúnaðarmál til Bankaeftirlitsins. (Gripið fram í: Má ég heyra þetta aftur?) Í svari Iðnaðarbankans, sem er Iðnaðarbankinn hf., vegna afgreiðslu við Réttarholtsveg í Reykjavík kom fram að bankastjórnin taldi sér ekki skylt að gefa umbeðnar upplýsingar nema sem trúnaðarmál. (Gripið fram í: Stenst þetta að mati ráðh.?)
Í 3. lið fsp. er spurt hvort viðskrh. vilji beita sér fyrir að afturkölluð verði leyfi til framangreindra útbúa og afgreiðslna ef starfsemi þeirra er ekki hafin. Ég vísa til svars míns við fsp. hv. 8. þm. Reykv. í fyrri viku. Þar benti ég á að hvorki mér, sem ráðh. bankamála, þ.e. viðskrh., né þeim ráðherrum sem fara með málefni Iðnaðarbankans og Búnaðarbankans væri heimilt að lögum að afturkalla þau leyfi sem veitt hafa verið til stofnunar bankaútibúa eða afgreiðslna í tíð fyrrv. ríkisstj. Vegna spurningar, sem hv. þm. beindi hér til mín áðan sérstaklega, varðandi þau útibú sem ekki hafa hafið starfsemi sína, vek ég athygli á því að afturköllun á ívilnandi aðgerðum getur haft í för með sér hugsanlega skaðabótaskyldu og það hefur ekki verið í mínum huga að stofna til slíkra hluta. Í ljósi þess að mér og öðrum, sem með málefni banka fara, er óheimilt að afturkalla leyfi til þessara útibúa get ég ekki beitt mér fyrir ráðstöfun á því fjármagni sem hér hefur verið að vikið og hnígur í þá átt sem fyrirspyrjandi bendir á.