22.11.1983
Sameinað þing: 23. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 992 í B-deild Alþingistíðinda. (882)
400. mál, bankaútibú
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka þeim hv. þm. Guðrúnu Agnarsdóttur og Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að vekja máls á þessum vandamálum banka þjóðarinnar. Ég hef áður hér í vetur vakið athygli á bankamálum og hef hvorki tíma né tel ástæðu til að endurtaka það hér. Ég held að við höfum öll séð hvernig komið er fyrir þessu kerfi. Bankarnir eyða sparifé landsmanna í alltof miklar fjárfestingar. Yfirbygging þeirra er óheyrileg, laun starfsmanna alltof lág og þjónustan eins vond og hún getur verið. Þá miða ég við þjónustu banka í nágrannalöndunum.
En þegar ég bað um orðið hér áðan ætlaði ég satt að segja að auglýsa eftir þeim hulduher hér í þingsölum sem situr í bankaráðum ríkisbankanna, vegna þess að enginn þeirra hafði tekið til máls. Ég vil þess vegna dást að hugrekki hv. þm. Stefáns Valgeirssonar, sem þó hefur tekið hér til máls. Alþingi Íslendinga getur ekki verið að jagast í hæstv. viðskrh. einum (Gripið fram í: Hafa menn ekki hugrekki til þess?) Hér situr fjöldi hv. þm. sem ber fulla ábyrgð á öllum þessum gerðum.
Það er alkunna að þjónusta bankanna við viðskiptavini er undir öflugri gagnrýni. Það er svo sem ekkert undarlegt þó að bankarnir geti fjárfest með þeim ofursektum sem þeir leggja á viðskiptavini sína, hvað lítið sem er.
Bankarnir hver og einn — og ég er sammála þar hv. þm. Stefáni Benediktssyni — geta ekki snúið sér við fyrir Seðlabankanum. Mér er vel kunnugt um að einn banka landsins ætlaði að bjóða ellilífeyrisþegum betri þjónustu. Gamla fólkið leggur inn, eða öllu heldur Tryggingastofnun ríkisins, mánaðarlega alla fjármuni sína. Einn banki ætlaði að bjóða þessu gamla fólki og raunar öryrkjum líka hærri vexti til jafns við svokölluð bundin innlán, en þó án þess að þau væru raunverulega bundin, þessar innistæður væru uppsegjanlegar. Seðlabankinn einfaldlega bannaði þetta. Þannig er þetta. Þarna ríkir ein allsherjarsamtrygging í því að veita viðskiptavinum vonda þjónustu, en sóa svo fjármunum landsmanna í gersamlega þarflausa fjárfestingu. Og ég held að Alþingi ætti nú einu sinni að sameinast um að taka á þessum málum.
Ég vil fara fram á það við hæstv. forseta, að hér verði dreift bók, sem hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir vitnaði mjög í í ræðu sinni, sem er yfirlit um efnahag og rekstur bankanna. Ég held að hv. þm. hefðu allir mjög gott af að lesa það rit.